Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

284. fundur
4. maí 2026 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Reynir Ívarsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Málsnúmer 202209088
Lögð eru fram drög að samningi á milli Hornafjarðarhafnar og Litlahorns ehf, um hafnaraðstöðuna á Austurfjöru.
Hafnarstjóra er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum um einföldun samningsins.

Samþykkt samhljóða.
2.
Rafmagn við bryggjur Hornafjarðarhafna
Málsnúmer 202605008
Hafnarstjórn óskar eftir upplýsingum um hvenær landtengingarrafmagn fyrir skipin við Miklagarðsbryggju verði kláruð.
Hafnarstjóra falið að afla upplýsinga um stöðu málsins og ýta á eftir framkvæmdum.

Samþykkt samhljóða.
3.
Tjón á Álaugareyjarbryggju
Málsnúmer 202605009
Óskað er eftir upplýsingum um hvenær áætlað er að laga tjón sem flutningaskip olli á Álaugareyjarbryggju.
Hafnarstjóra er falið að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.