Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

284. fundur
6. júlí 2026 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Fundarsalur
Hjördís Edda Olgeirsdóttir formaður
Haukur Ingi Einarsson varamaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir Áheyrnarfulltrúi til vara
Atli Arnarson aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Málsnúmer 202206036
Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://fundargatt.hornafjordur.is/login/. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Arndís Lára Kolbrúnardóttir kom á fundinn og kynnti fundargátt sveitarfélagsins og erindisbréf Hafnarstjórnar.
2.
Ný staðsetning hafnarvogar á Höfn
Málsnúmer 202604014
Fyrir fundinum liggur tillaga að nýrri staðsetningu hafnarvogar. Fyrirhugaðar staðsetningar hafa verið teiknaðar við Krosseyjarveg, Sæbraut og Álaugarveg.Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu til umræðu í Hafnarstjórn.
Fundarmenn eru sammála um að staðsetning á Krosseyjarvegi gegnt fiskmarkaðnum er hentugust af þeim fjórum valkostum sem sýndir eru í fyrirliggjandi tillögu. Hafnarstjórn felur forstöðumanni hafnarinnar að fylgja málinu eftir. Vísað til bæjarráðs.
3.
Dýpkun á Grynnslum 2026-2028
Málsnúmer 202601088
Fyrir fundinum lágu gögn er sýndu stærð dýpkunarsvæðis og breytingu á dýpi eftir dýpkun. Alls voru teknir um 560 þúsund rúmmetrar. Svæðið verður áfram vaktað með reglubundnum mælingum þar til dæling fer aftur fram að ári liðnu.
4.
Bræðslubryggja Endurbætur
Málsnúmer 202607007
Fyrirhugað eru endurbætur á bræðslubryggju.
Forstöðumaður hafnarinanr greindi frá stöðu verkefnisins og að endurbygging sé á áætlun Vegagerðarinnar árið 2030. Hafnarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Vegagerðina um lausnir til að flýta framkvæmdinni.
5.
Hafnasamband Íslands 2026
Málsnúmer 202601091
Fundargerðir ti kynningar
Til kynningar.
6.
Hafnasambandsþing 2026
Málsnúmer 202607006
Hafnasambandsþing verður haldið 22.-23. október í Reykjanesbæ.það þarf að fara að huga að þáttöku gott að fólk fari að hugsa málið
Til kynningar.