hafnarstjórn Hornafjarðar
285. fundur
25. ágúst 2026
kl.
15:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lena Hrönn Marteinsdóttir
varaformaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Þorgils Snorrason
aðalmaður
Atli Arnarson
aðalmaður
Ingvi Þór Sigurðsson
varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Dýpkun á Grynnslum 2026-2028
Vignir kynnti dýpkun á Grynnslunum og næstu skref. Sagði að náðst hafi að dýpka eins og til stóð og aðstæður þar góðar. Nú yrði fylgst vel með þróuninni í vetur. Mál til kynningar
Hafnarstjórn þakkar Vigni fyrir kynninguna.
2.
Ný staðsetning hafnarvogar á Höfn
Rætt var um staðsetningu Hafnarvogar í framhaldi af síðasta fundi hafnarstjórnar.
Hjalti gerði grein fyrir álitamálum sem komið hafi upp í kjölfar síðasta fundar. Fundarmenn sammála að vinna þetta náið með þeim sem nýta vigtina mest. Starfsmönnum falið að meta kostnað við flutning vigtarinnar. Málið tekið aftur fyrir á næsta fundi.
3.
Samtal við Vegagerðina um málefni hafnarinnar
Hjalti greindi frá að hann hafi óskað eftir fundi með Vegagerðinni um tvö mál. Annars vegar um áframhald á samningi um dýpkun innan hafnarinar og hins vegar um að flýta framkvæmdum við Bræðslubryggju.
Fyrirhugaður er fundur með forstöðumanni hafnadeildar fimmtudaginn 27. ágúst nk. til að fara yfir málefnin.
4.
Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Hafnarstjóra falið að opna samtalið við Litlahorn ehf. og leggja fram minnisblað um álitamál er varðar samninginn á næsta fundi.