hafnarstjórn Hornafjarðar
286. fundur
28. september 2026
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
formaður
Lena Hrönn Marteinsdóttir
varaformaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Þorgils Snorrason
aðalmaður
Ágúst Ágústsson
varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hafnasambandsþing 2026
Samkvæmt tekjuviðmiði hafna eigum við seturétt fyrir sex fulltrúa.
Sammþykkt að fjórir fulltrúar fari frá Hornafjarðarhöfn á umrætt þing.
2.
Hafnasamband Íslands 2026
Lagt fram til kynningar.
3.
Dýpkun innan hafnar 2027
Fyrir fundinum lá bréf frá Kjartani Elíassyni frá Vegagerðinni um áframhaldandi dýpkun innan hafnar.
Hafnarstjórn samþykkir að verkið verði boðið út á nýjan leik.
4.
Bræðslubryggja Endurbætur
Fyrir fundinum lá bréf frá Kjartani Elíassyni frá Vegagerðinni um möguleika á að flýta framkvæmdum við Bræðslubryggju og að Hornafjarðarhöfn fjármagni verkið gegn greiðslu samkvæmt gildandi samgönguáætlun.
Hafnarstjórn er sammála um að hefja eigi frumhönnun á bryggjunni og unnið sé kostnaðarmat á grunni hennar. Einnig óskar Hafnarstjórn eftir að fjármálastjóri vinni mat á fjárhagslegum áhrifum og ákvörðun um mögulega flýtingu verði tekin eftir að þær upplýsingar berast.
5.
Fríholt við löndunarkrana, berist til allra í hafnarstjórn
Fyrir fundinum lá bréf frá Hólmari Halli Unnsteinssyni um beiðni að bæðt við dekkjum eða belgjum við löndunarkrana smábáta.
Bent var á stigar væru orðnir lúnir og hefði meðal annars áhrif á störf kafara. Einnig að huga þurfi að ljósum við stigana. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að bregðast við framkomnum ábendingum og laga þar sem þörf er á.
6.
Tímabundnar umferðaröryggisaðgerðir á hafnarsvæðinu
Lagðar eru fram tvær tillögur að breyttu umferðarskipulagi og útfærslu bílastæða á hafnarsvæðinu. Meginmarkmið tillagnanna er að auka öryggi í tengslum við starfsemi á hafnarsvæðinu og vegfarenda á svæðinu, auk þess að tryggja greiðara umferðarflæði og bæta við skiltum og merkingum á svæðinu.
Einnig eru meðfylgjandi erindi frá Ingvari Ágústssyni frá FMS og Sigurði Ólafssyni hf.
Einnig eru meðfylgjandi erindi frá Ingvari Ágústssyni frá FMS og Sigurði Ólafssyni hf.
Hafnarstjórn þakkar fyrir innsend erindi. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna málið áfram með hagsmuni hafnarinnar og öryggi að leiðarljósi. Einnig að upp verði settar skýrar merkingar um bílastæði í nágrenni hafnarinnar.
7.
Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Fyrir fundinum lá minnisblað um hafnaraðstöðu á Austurfjöru.
Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að sækja um stofndýpkun við bryggju á Austurfjöru og vinna drög að samningi við Litlahorn ehf.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að sækja um stofndýpkun við bryggju á Austurfjöru og vinna drög að samningi við Litlahorn ehf.
8.
Vélaviðgerð Björn Lóðs
Vignir fór yfir vélaviðgerð á Birni Lóðs. Viðgerðin var umfangsmikil og leitað var til tryggingarfélags um kostnaðarþátttöku.
Hafnarstjórn þakkar Vigni fyrir yfirferðina.