Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

10. fundur
24. nóvember 2015 kl. 16:30 - 18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201305011
Nefndin fór yfir stefnuna og starfsmanni er falið að koma ábendingum til umhverfisnefndar. Fram kemur að stofnanir sveitarfélagsins eru hvattar til að setja sér umhverfisstefnu, stjórnendum falið að vinna stefnu/framkvæmdaáætlun fyrir heilbrigðisstofnunina.
2.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Málsnúmer 201309021
Starfsmanni falið að koma ábendingum til umhverfisnefndar.
3.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerðir kynntar.
4.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Málsnúmer 201503043
Reksturinn er enn erfiður. Framkvæmdastjóri vinnur áfram í að fá greiddar launabætur frá HSU sem tilheyra heilsugæslu og sjúkradeild fyrir árin 2014 og 2015. Framkvæmdastjóri hefur verið í samskiptum við framkvæmdastjórn HSU sem hefur ekki viljað viðurkenna hlutfall starfsstétta samkvæmt skilgreiningu þjónustusamnings við útreikninga launabóta. Það er skýrt samkvæmt grein 7.3 í þjónustusamningnum. Send var fyrirspurn til Velferðarráðuneytisins í síðustu viku og er nú beðið svara.
5.
Skjólgarður
Málsnúmer 201503091
Lovísa leggur til að nafnið Skjólgarður verði tekið upp á ný yfir hjúkrunardeild HSU Hornafirði. Tillagan er samþykkt samhljóða.
6.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Málsnúmer 201501072
Teikningar frá Glámu-Kím á viðbyggingu við garðskála hjúkrunardeildar kynntar. Nefndin leggur áherslu á að stækkunin verði að lágmarki tvöföldun á núverandi garðskála, kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir meiri kostnaði en lagt var upp með í byrjun. Framkvæmdastjóra falið að kanna möguleika á að fá kostnaðaráætlun uppfærða.
7.
Sameining Heilbrigðisstofnana
Málsnúmer 201410056
Frestað til næsta fundar.
8.
Þjónustukönnun á HSU Hornafirði
Málsnúmer 201511054
Nú stendur yfir þjónustukönnun á heilbrigðisstofnuninni. Niðurstöður verða kynntar þegar þær liggja fyrir.