Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

12. fundur
27. janúar 2016 kl. 16:30 - 18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Vignir Júlíusson 1. varamaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð kynnt.
2.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Málsnúmer 201503043
Farið var yfir rekstrarstöðu ársins 2015 miðað við 31.desember. Það er ljóst að það er halli á rekstri ársins 2015. Ástæður hallareksturs eru fyrst og fremst aukinn launakostnaður meðal annars vegna aukinna umsvifa vegna sjúkraflutninga og hækkun launa vegna nýrra kjarasamninga.
3.
Starfsáætlun HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201601068
Starfsáætlun ársins 2016 kynnt.
4.
Öldrunarrannsókn
Málsnúmer 201508027
Nefndinni líst vel á hugmyndina. Verkefninu fylgir þó töluverður kostnaður sem þörf er á að fá betri útskýringar við. Áður en afstaða verður tekin er þörf á að fá betri upplýsingar meðal annars um frekari fjármögnun á verkefninu og í hverju kostnaður sveitarfélagsins liggur. Framkvæmdastjóra er falið að afla frekari upplýsinga.
5.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Málsnúmer 201501072
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd treystir sér ekki til að fara út í framkvæmd á sólskála að svo stöddu. Nefndin leggur áherslu á að vinna frekar að því að fá fjármagn til viðbyggingar við hjúkrunarheimilið þannig að hægt sé að útrýma einbýlum.
6.
Bygging á nýju hjúkrunarheimili HSSA
Málsnúmer 201212003
Framkvæmdasjóður aldraðra hefur óskað eftir því að fá umsókn um byggingu hjúkrunarheimilis á Hornafirði þannig að framkvæmdasjóðurinn geti mælt með uppbyggingu á Hornafirði inn á framkvæmdalista heilbrigðisráðherra.
Nefndin hvetur til að unnin verði umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili. Umsóknarfrestur í Framkvæmdasjóðinn er 1. febrúar 2016, kl 16.