Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

13. fundur
24. febrúar 2016 kl. 16:30 - 17:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Menningarstefna Hornafjarðar
Málsnúmer 201504037
Til umsagnar
Nefndin gerir engar athugasemdir við stefnuna.
2.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
3.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201512055
Fjárhagsáætlun er afgreidd með 13 milljón króna halla á árinu 2016. Stór hluti hallans er vegna aukins launakostnaðar vegna sjúkraflutninga en launaáætlun gerir ráð fyrir 12 milljón króna hækkun vegna þess. Það er ljóst að endurskoða þarf skipulag í kringum sjúkraflutninga í samræmi við skipulagið á Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Nefndin óskar eftir mögulegri útfærslu fyrir næsta fund. Framkvæmdastjóri hefur sent skýrslu um aukningu í starfsemi sjúkraflutninga til þingmanna Suðurkjördæmis, heilbrigðisráðherra, starfsmanna ráðuneytis og stjórnenda HSU en fjárframlög hafa ekki aukist í takt við aukin útgjöld vegna sjúkraflutninga. Nefndin vísar fjárhagsáætluninni til bæjarráðs.
4.
Barnalæknaþjónusta á HSU Hornafirði
Málsnúmer 201602078
Erfiðlega hefur gengið að fá barnalækna til að sinna Hornafirði. Framkvæmdastjóri hefur verið í samskiptum við nokkra lækna sem eru enn að vinna að því að manna þjónustuna á þann hátt að 3-4 barnalæknar myndi teymi sem skipta ferðum á milli sín þannig að hver læknir kemur 1-2 svar á ári.