Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

14. fundur
17. mars 2016 kl. 16:30 - 17:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201603036
Rekstrarstaðan er í jafnvægi.
3.
Sjúkraflutningar HSU Hornafirði
Málsnúmer 201603040
Skýrsla um sjúkraflutninga lögð fram til kynningar. Skýrslan sýnir þróun sjúkraflutninga síðustu 4 ár en fjölgun útkalla frá árinu 2012 er 100%. Skýrslan var send til þingmanna Suðurkjördæmis, framkvæmdaráðs HSU og til heilbrigðisráðherra. Engin viðbrögð hafa borist. Einnig lögð fram tillaga að endurskipulagningu sjúkraflutninga. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.
4.
Fundur með framkvæmdastjórn HSU á Selfossi
Málsnúmer 201603041
Forstjóri HSU hefur óskað eftir því að funda með fulltrúum bæjarstjórnar og stjórnendum á Hornafirði sem fyrst vegna undirbúnings að gerð nýs þjónustusamnings. Hún hefur óskað eftir því að fundurinn verði á Selfossi að þessu sinni. Framkvæmdastjóri hefur jafnframt lagt áherslu á að samhliða verði haldinn fundur með Velferðarráðuneyti og fulltrúum frá Sjúkratryggingum Íslands. Lagt til að fundurinn verði haldinn fyrstu vikuna í apríl.
5.
Úttekt SÍ á framkvæmd samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2012-2016
Málsnúmer 201603030
Lögð fram úttekt frá SÍ á þjónustusamningi Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem rennur úr gildi um næstu áramót. Úttektin er góður grunnur til að byggja á við gerð nýs þjónustusamnings.
6.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Málsnúmer 201603032
Lögð fram greinagerð við undirbúning á gerð nýs þjónustusamnings um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði. Nefndin leggur áherslu á að samið verði um allan rekstur á heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er lögð áhersla á að fá sundurliðað frá ríkisvaldinu hvernig fjármögnun heilsugæslunnar á Hornafirði er, það hefur ekki verið gagnsætt fram að þessu. Framkvæmdastjóra falið að vinna áfram að samningsmarkmiðum.
7.
Verkfallsboðun sjúkraliða
Málsnúmer 201603061
Boðað hefur verið verkfall hjá sjúkraliðum í starfi hjá sveitarfélögum frá 4. apríl næstkomandi ef ekki næst samkomulag. Það eru í gildi undanþágulistar sem tryggja lágmarksmönnun til að tryggja öryggi íbúa og sjúklinga. Það er ljóst að verkfall mun hafa mikil áhrif hjá heilbrigðisstofnuninni ef af verður.