Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

15. fundur
27. apríl 2016 kl. 16:30 - 17:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Sandra Sigmundsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 74
Málsnúmer 1506003F
2.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 75
Málsnúmer 1509012F
Til kynningar.
3.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 76
Málsnúmer 1510004F
Til kynningar.
4.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 77
Málsnúmer 1603013F
Til kynningar.
5.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Til kynningar.
6.
Ársreikningur 2015
Málsnúmer 201604082
Sigurjón Ö. Arnarson endurskoðandi sveitarfélagsins kynnti ársreikning stofnunarinnar. Afkoma af rekstri stofnunarinnnar á árinu 2015 var neikvæð um 8.394 þús.kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé stofnunarinnar í árslok var neikvætt um 8.5 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Launakostnaður hækkaði verulega á árinu, eða um rúmar 40 milljónir, í kjölfar gerð kjarasamninga og launabætur duga ekki til að mæta þeirri hækkun. Stöðugildi við stofnunina á árinu 2015 voru 49 að meðaltali en voru 48,5 árið 2014. Nefndin samþykkir ársreikninginn.
7.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201603036
Rekstrarstaðan er í jafnvægi.
8.
Kostnaðargreining fyrir hjúkrunarheimili 2016
Málsnúmer 201604083
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) hafa óskað eftir því að Sjúkratryggingar Íslands léti óháðan aðila kostnaðargreina þjónustuna hjúkrunarheimila til að fá úr því skorið hvað hún kostar í raun, enda hafa hjúkrunarheimilin (og fleiri) bent á að fjárframlög til heimilanna sé allt of lág til að þau geti mætt þeim kröfum sem gerð er um þjónustuna. SÍ hafa ekki fallist á að taka þátt í slíkri faglegri og óháðri úttekt. Grund og Hrafnista leituðu til ráðgjafarfyrirtækisins Nolta um að framkvæma kostnaðargreiningu á rekstri hjúkrunarheimilis sem uppfyllti allar opinberar kröfur til þjónustunnar. Var þetta gert í samstarfi við SFV. Niðurstöður tveggja rekstraráætlana sem settar eru fram í greinargerðinni sýna að daggjald fyrir 30 rýma hjúkrunarheimili þarf að vera kr. 43.860,- miðað við æskilega mönnun í umönnunarmódeli Landlæknis. Ef miðað er við miðlæga mönnun þá þarf daggjald fyrir 30 rýma hjúkrunarheimili að vera kr. 41.381.-. Þess má geta að daggjald fyrir hjúkrunarheimilið Skjólgarð er í dag 26.747.
9.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Málsnúmer 201603032
Boðaður hefur verið fundur með fulltrúum frá Velferðarráðuneyti, Sjúkratryggingum, framkvæmdastjórn HSU, bæjarráði og bæjarstjóra Hornafjarðar ásamt framkvæmdastjóra HSU Hornafirði á morgun 28. apríl. Þetta er fyrsti formlegi fundurinn þar sem framhald þjónustusamnings verður rætt. Farið yfir undirbúningsgögn fyrir fundinn á Selfossi.