Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

16. fundur
25. maí 2016 kl. 16:30 - 17:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 78
Málsnúmer 1605009F
Til kynningar.
2.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Til kynningar.
3.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201603036
Reksturinn er í jafnvægi. Síðustu launaleiðréttingar vegna gerðra kjarasamninga eru að koma til greiðslu um mánaðarmót maí-júní sem mun hafa áhrif á rekstrarstöðuna.
4.
Barnalæknaþjónusta á HSU Hornafirði
Málsnúmer 201602078
Nú er komin niðurstaða í barnalæknaþjónustu. Það eru 3-4 barnalæknar af Barnaspítalanum tilbúnir að þjónusta Hornafjörð. Það var barnalæknir með móttöku á heilsugæslustöðinni í síðustu viku og mun hann koma aftur í haust.
5.
Starfsmannamál HSU Hornafirði
Málsnúmer 201605071
Staða starfsmannamála er ásættanleg fyrir sumarið. Vel hefur gengið að manna flestar stöður sumarafleysinga. Það getur þó komið upp sú staða að draga verður úr þjónustu í heimahjúkrun einhverja daga í sumar. Mönnun næsta veturs lítur vel út. Heilsuvernd mun halda áfram að manna eina læknastöðu næsta vetur.
6.
Menntun sjúkraflutningamanna
Málsnúmer 201601051
Fjórir nemendur hafa stundað nám í Sjúkraflutningaskólanum og útskrifast með grunnréttindi sjúkraflutningamanna þann 3. júní næstkomandi. Fjölgar því um 4 í hópi sjúkraflutningamanna hjá stofnuninni. Heilbrigðisstofnunin hlaut styrk frá Sveitamennt til að standa undir kostnaði vegna menntunarinnar.