Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
17. fundur
22. júní 2016
kl.
14:00
-
15:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Reksturinn er í jafnvægi.
3.
Ársskýrsla HSU Hornafirði 2015
Farið yfir ársskýrslu HSU Hornafirði fyrir árið 2015. Starfsemin er svipuð og hefur verið undanfarin ár. Ársskýrslan verður birt á heimasíðu stofnunarinnar.
4.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2016
Sótt var um fjármagn til að byggja við hjúkrunarheimilið í Framkvæmdasjóð aldraðra í febrúar. Umsókninni var hafnað á grunni þess að fjármagn er ekki tryggt af hálfu ríkisins og kostnaðaráætlun er ófullkomin. Sveitarfélgið hefur ekki látið teikna bygginguna þar sem óvissa er með fjármögnun og því ekki hægt að leggja fram fullkomna kostnaðaráætlun. Sveitarfélagið er tilbúið til að fara í framkvæmdina um leið og hlutur ríkisins er tryggður.
5.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Enn hefur ekki komið fundarboð frá SÍ til að hefja viðræður um gerð nýs þjónustusamnings við ríkið um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á Hornafirði. Á fundi í vor með fulltrúum HSU, SÍ og VEL kom fram að SÍ, HSU og Sveitarfélagið Hornafjörður mundi tilnefna tvo fulltrúa hver í samninganefnd. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd tilnefnir Björn Inga Jónsson og Matthildi Ásmundardóttur.