Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

18. fundur
23. ágúst 2016 kl. 16:30 - 17:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201603036
Reksturinn er í jafnvægi.
2.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603038
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd felur framkvæmdastjóra að senda inn athugasemdir.
3.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603072
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd felur framkvæmdastjóra að senda inn athugasemdir.
4.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Málsnúmer 201603032
Unnið hefur verið að því frá því haldinn var fundur í apríl 2016 með stjórnendum HSU, fulltrúum velferðarráðuneytis og SÍ að hefja samningaviðræður um áframhald þjónustusamnings um rekstur heilbrigðisþjónustu. Nú hefur verið þrýst á ráðherra, þingmenn og SÍ síðan í apríl en ekkert hefur gerst. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd lýsir yfir áhyggjum af stöðu mála og leggur áherslu á að ná samningafundi hið fyrsta. Ekki er framlengingarákvæði í núverandi samningi og er því litið svo á að stofunin renni sjálfkrafa inn í sameiginlega stofnun HSU um næstu áramót. Því fylgja margir óvissuþættir fyrir starfsfólk stofnunarinnar og íbúa sveitarfélagsins og er því nauðsynlegt að fá svör sem fyrst.
5.
Bygging á nýju hjúkrunarheimili HSSA
Málsnúmer 201212003
Illa hefur gengið að ná eyrum ráðamanna vegna byggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilinu. Heilbrigðis-og öldrunarnefnd leggur til að sveitarfélagið setji fjármagn í teikningar. Þá verði send inn umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra í næstu úthlutun ásamt teikningum og ítarlegri kostnaðaráætlun. Jafnframt verði leitað leiða til að tryggja mótframlag frá ríkissjóði.
6.
Starfsmannamál HSU Hornafirði
Málsnúmer 201605071
Góð mönnun er við stofnunina í vetur. Áfram verður samið við Heilsuvernd um læknisþjónustu og einnig mun ljósmóðurþjónusta vera tryggð með sama hætti og verið hefur.