Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
19. fundur
5. október 2016
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Vignir Júlíusson
1. varamaður
Pálína Sighvatsdóttir
fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerðir lagðar fram til kynningar. Landlæknir kemur til Hornafjarðar 27. október næstkomandi þar sem verður undirritaður samningur um heilsueflandi samfélag.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Reksturinn er í jafnvægi.
3.
Samningar SFV um öldrunarþjónustu
Farið yfir drög að nýjum rammasamningi um þjónustu hjúkrunarheimila. Samkvæmt samningnum eiga greiðslur fyrir dvalarrými að hækka um 9% og meðalgreiðsla fyrir hjúkrunarrými að hækka um 5,4%. Einnig kemur fram að ríki og sveitafélög gera með sér samkomulag um greiðslur lífeyrisskuldbindinga líkt og hefur verið gert við önnur hjúkrunarheimili. Í samningnum kemur fram að hjúkrunarheimili verða að sækja um aðild að samningnum fyrir 15. nóvember 2016. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar þessum samningi og vísar honum til bæjarráðs.
4.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2017 - Bygging hjúkrunarheimilis
Farið yfir tilboð í hönnunarkostnað á nýju hjúkrunarheimili. Lögð áhersla á að við ákvörðunartöku sé farið vel yfir alla kostnaðarþætti s.s. funda- og ferðakostnað.
5.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Það barst tölvupóstur frá Sjúkratryggingum Íslands þar sem kemur fram að nýr þjónustusamningur sé í undirbúningi. Nefndin lýsir ánægju með að vinna við gerð þjónustusamnings sé komin á stað og væntir þess að nýr samningur verði tilbúinn sem fyrst.
6.
Þjónustukönnun Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Hornafirði 2016
Farið yfir niðurstöður úr þjónustukönnun á þjónustu heilbrigðisstofnunarinnar. Heilt yfir má segja að niðurstöður eru jákvæðar fyrir flest alla þjónustuþætti og ívið betri en fyrri ár.
7.
Vinnustaðagreining HSU Hornafirði 2016
Farið yfir niðurstöður vinnustaðagreiningar. Niðurstöður eru að mörgu leiti betri en árið 2014. Það eru ýmsir þættir sem má bæta og verða ræddir á starfsmannafundum á næstunni.
8.
Samningar hjúkrunafræðinga
Bréf frá hjúkrunarfræðingum Skjólgarðs lagt fram til kynningar. Því vísað áfram til bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stofnunarinnar til meðferðar.