Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
20. fundur
24. október 2016
kl.
12:00
-
12:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir
starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar nýjum samningi um rekstur heilsugæslu- og sjúkrasviðs. Í samningi kemur fram að sjúkrarýmum fjölgar um eitt og verða því fjögur eins og var fyrir hrun. Það þarf að skýra heiti stofnunarinnar í nýjum samningi ásamt því hvernig fyrirkomulagi hvað varðar dagdvöl aldraðra verður háttað. Aukin áhersla er lögð á faglega og fjárhagslega ábyrgð verksala frá fyrri samningi ásamt eftirliti með framkvæmd hans. Nýr samningur gildir út árið 2019 og nefndin leggur til að sett verði inn í samninginn framlengingarákvæði.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Reksturinn er í jafnvægi samkvæmt umræðum fundarins.