Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

22. fundur
20. desember 2016 kl. 16:30 - 17:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201603036
Reksturinn er í jafnvægi.
3.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201612055
Fyrstu drög fjárhagsáætlunar lögð fram. Forsendur eiga eftir að skýrast hvað tekjuhlið varðar í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á Alþingi. Einnig er verið að vinna að lausn lífeyrisskuldbindinga með aðstoð LSR og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
4.
Gjaldskrá mötuneytis 2017
Málsnúmer 201612054
Gjaldskrá fyrir mötuneyti lögð fram. Rætt um að setja á aksturgjald ef ekið er með mat langan veg. Framkvæmdastjóra falið að kanna hvernig málum er háttað annars staðar í samráði við félagsþjónustuna. Að öðru leiti er gjaldskráin samþykkt.
5.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201201073
Það hafa ekki borist nýjar teikningar eftir að athugasemdir voru sendar. Arkitektinn mun senda nýjar teikningar í byrjun janúar.