Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
27. fundur
29. maí 2017
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir
fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerðir Velferðarteymis lagðar fram til kynningar.
2.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2016
Sigurjón Arnarson lögg. endurskoðandi kynnti ársreikning HSU Hornafirði. Afkoma af rekstri stofnunarinnar á árinu 2016 var jákvæð um 3,7 millj.kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé stofnunarinnar í árslok var neikvætt um 4,8 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er til ársreiknings varðandi ráðstöfun afkomu ársins og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd og framkvæmdastjóri HSU Hornafirði, staðfesta ársreikning stofnunarinnar fyrir árið 2016 með undirritun sinni.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd og framkvæmdastjóri HSU Hornafirði, staðfesta ársreikning stofnunarinnar fyrir árið 2016 með undirritun sinni.
3.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Reksturinn er í jafnvægi.
4.
Tölum saman, sálfræði- og geðlæknaþjónusta
Samningur við Birgi sálfræðing er að renna í júní en hann hefur boðið upp á einstaklingsviðtöl á heilsugæslunni einu sinni í mánuði. Rætt hefur verið við fyrirtækið Tölum saman um að veita sálfræði- og geðlæknaþjónustu en fyrirtækið veitir fjarþjónustu í gegnum sérstakan tölvubúnað. Viðræður standa yfir og meðal annars er verið að leita styrkja í verkefnið þar sem um nýjung í þjónustu er að ræða.
5.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Vinna við stefnumótun fyrir stofnunina.