Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
28. fundur
5. júlí 2017
kl.
16:30
-
17:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Pálína Sighvatsdóttir
fulltrúi starfsmanna
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Reksturinn er í jafnvægi.
3.
Ársskýrsla HSU Hornafirði 2016
Matthildur fór yfir ársskýrslu ársins 2016. Starfsemin er í föstum skorðum.
4.
Starfsmannamál HSU Hornafirði
Sumarmönnun er góð á stofnuninni. Næsti vetur lítur einnig vel út hvað mönnun varðar, m.a. er búið að ráða hjúkrunarfræðing frá og með 1. september.
5.
Umsókn í framkvæmdasjóð aldraðra-öryggiskerfi í Mjallhvít
Samþykkt að leggja inn umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra um sjúkrakallkerfi í Mjallhvít dvalarheimili. Framkvæmdastjóra falið að vinna umsókn og senda inn.