Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
3. fundur
17. mars 2015
kl.
16:30
-
18:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Snorri Snorrason
aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Pálína Sighvatsdóttir
starfsmaður HSSA
Björg Sigurjónsdóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 2
Samþykkt.
2.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Rekstrarstaðan er í jafnvægi.
3.
Atvinnustefna 2015-
Nefndin fór á hugarflug við spurningar Atvinnumálanefndar.
4.
Málþing um öldrun og heilbrigði
Haukur H. Þorvaldsson sat fundinn undir þessum lið fyrir hönd Félags eldri Hornfirðinga. Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar hvatti Heilbrigðis- og öldrunarnefndina til að standa fyrir málþingi um öldrun og heilbrigði. Nefndin fagnar tillögunni og er tilbúin að standa fyrir slíku málþingi. Lögð áhersla á að málþingið verði haldið í apríl eða maí. Næstu skref er að hafa samband við ráðamenn, Heilbrigðisráðherra og Félags- og húsnæðismálaráðherra og ákveða dagsetningu þingsins út frá því. Einnig rætt um að fá öldrunarlækni og starfsmenn Landlæknisembættisins og Velferðarráðuneytisins. Haukur leggur áherslu á að vera í samstarfi við Landssamband eldri borgara. Nefndin heldur áfram undirbúningi að málþingi og felur starfsmanni og formanni áframhaldandi vinnu.
5.
Bygging á nýju hjúkrunarheimili HSSA
Haukur sat einnig fundinn undir þessum lið. Farið yfir þau gögn sem til eru um byggingu á nýju hjúkrunarheimili. Nefndin hefur hug á að fara í vettvangsferð austur á land til að skoða nýju heimilin á Egilsstöðum og Eskifirði. Lagt til að fara í skoðunarferðina fljótlega eftir Páska. Framkvæmdastjóra falið að vinna í því að skipuleggja ferðina og bjóða Hollvinasamtökunum með.
6.
Samningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2013-2016
Framkvæmdastjóri kynnti bréf bæjarstjóra þar sem farið er fram á að úttekt verði gerð á þjónustusamningi um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði frá 2013-2016 eins og kveðið er á um í þjónustusamningnum.