Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
30. fundur
27. september 2017
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Vignir Júlíusson
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Fundargerð lögð fram til kynningar. Rætt um þjónustu sálfræðings við heilsugæsluna, ekki hefur verið samið um þjónustu enn sem komið er. Staða iðjuþjálfa í hlutastarf verður auglýst til umsóknar við Skjólgarð á næstu dögum.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Reksturinn er í jafnvægi. Það er 100% nýting hjúkrunar- og dvalarrýma á árinu. Fimm einstaklingar eru á bið eftir hjúkrunarrými og tveir bíða eftir plássi í dvalarrými.
3.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Lagt fram vinnuskjal frá hugmyndavinnu af vorfundi starfsmanna. Ákveðið að fara í frekari könnun á meðal starfsmanna um gildi stofnunarinnar. Næstu skref eru að fá fram sjónarmið eldri Hornafirðinga og í kjölfarið leggja fram drög að stefnu.
4.
Bekkir á gönguleið fyrir eldri borgara
Verkefnið "Bekkir á gönguleiðum fyrir eldri borgara" var unnið í samstarfi Heilbrigðisstofnunarinnar, Félags eldri Hornfirðinga og sveitarfélagsins. Kortlagðar hafa verið þrjár gönguleiðir með bekkjum með reglulegu millibili. Kort af gönguleiðunum er aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins. Formleg vígsla gönguleiðanna verður laugardaginn 30. september í tengslum við haustfund Félags eldri Hornfirðinga. Verkefnið verður kynnt betur í fjölmiðlum.
5.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Rætt um hugmyndir um hvernig hægt er að flýta fyrir byggingu á nýju hjúkrunarheimili. Fyrirhugaður var fundur með heilbrigðisráðherra vegna málsins en af fundinum varð ekki vegna falls ríkisstjórnarinnar. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur áherslu á að leitað verði allra leiða til að flýta fyrir byggingu hjúkrunarheimilis.
6.
Erindi vegna þjónustu við aldraða
Farið yfir fund sem stjórnendur heilbrigðisstofnunarinnar og félagsþjónustunnar átti með aðstandendum eldri íbúa í sveitarfélaginu. Aðstandendur óska eftir aukinni þjónustu í heimahús þannig að aldraðir séu öruggari heima. Það er verið að vinna að málaflokknum með það að markmiði að auka þjónustu miðað við þarfir.
7.
Rútuslysaæfing
Fyrirhuguð er æfing á viðbragði við rútuslysi á meðal viðbragðsaðila á Hornafirði næstkomandi miðvikudag þann 4. október. Undirbúningur stendur yfir en æfingin verður smærri í sniðum en flugslysaæfing. Að æfingunni koma lögreglan, slökkviliðið, björgunarsveitin og heilbrigðisstofnunin.