Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

35. fundur
24. janúar 2018 kl. 16:30 - 17:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Vignir Júlíusson aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201709332
Rekstrarstaða er góð fyrir árið 2017.
2.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201709308
Farið yfir athugasemdir frá nefndum sveitarfélagsins sem bárust. Framkvæmdastjóra falið að ljúka við stefnuna með þær í huga og leggja fram til samþykktar á næsta fundi.
3.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Farið yfir fyrstu drög að frumathugun og þarfagreiningu frá Framkvæmdasýslu ríkisins. Framkvæmdastjóra falið að koma ábendingum nefndar á framfæri. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur áherslu á að skrifað verði undir samninga um bygginguna hið fyrsta.
4.
Þjónustukönnun HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201801085
Farið yfir niðurstöður úr þjónustukönnun sem framkvæmd var í nóvember 2017. Niðurstöður almennt jákvæðar, þær verða kynntar á vefmiðlum stofnunarinnar og nýttar til bóta í starfseminni.
5.
Rútuslys við Kirkjubæjarklaustur
Málsnúmer 201801011
HSU Hornafirði brást við hópslysaútkalli á Kirkjubæjarklaustri 27. desember 2017 en 8 starfsmenn fóru frá Höfn á vettvang. Starfsmenn nýttust vel í áverkamati og skoðun þolenda úr slysinu sem komu í fjöldahjálparstöð og sýndi sig að reynsla frá hópslysaæfingum undanfarin ár hefur skilað árangri.