Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

36. fundur
7. mars 2018 kl. 16:30 - 17:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Vignir Júlíusson aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2018
Málsnúmer 201802091
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201709332
Reksturinn fyrir árið 2017 skilar jákvæðri niðurstöðu.
3.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2018
Málsnúmer 201803002
Reksturinn er í jafnvægi.
4.
Þjónustuúttekt iðjuþjálfa HSU Hornafirði 2018
Málsnúmer 201801108
Stofnunin auglýsti eftir iðjuþjálfa til starfa í nóvember 2017. Engar umsóknir bárust og var því leitað lausna. Samstarf hefur tekist við sjálfstætt starfandi iðjuþjálfa, Guðrúnu Jóhönnu Hallgrímsdóttur sem rekur fyrirtækið HeimaStyrkur. Hún var fengin til að gera þjónustuúttekt við stofnunina. Jafnframt var gerður samningur við Guðrúnu um einstaklingsþjálfun þar sem hún leggur til þjálfunaráætlanir fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins sem ákveðnir starfsmenn fylgja eftir með hennar aðstoð. Verkefnið fer vel af stað. Sjúkratryggingar Íslands hafa nú fellt úr gildi undanþágu vegna vöntunar á iðjuþjálfa sem gert var ráð fyrir í samningi um rekstur hjúkrunarheimilis.
5.
Hlutaúttekt heilsugæslustöðva HSU
Málsnúmer 201803003
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd tekur undir niðurstöður úttektar en þar kemur fram að "skýra þarf hlutverk forstjóra og framkvæmdastjórnar HSU varðandi rekstur HSU Hornafirði. Embætti landlæknis hvetur velferðarráðuneytið til að skilgreina betur hlutverk framkvæmdastjórnar HSU gagnvart stjórn HSU Hornafirði. Jafnframt er mikilvægt að skýrt sé
hver ber faglega ábyrgð á starfseminni ef upp koma atvik."
6.
Umsögn um frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu, 178. mál
Málsnúmer 201803018
Nefndin fagnar framlögðu frumvarpi og sérstaklega ákvæði um að útrýma tvíbýlum á innan við fimm árum. Ekki gerðar athugasemdir við frumvarpið.