Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
37. fundur
4. apríl 2018
kl.
16:30
-
17:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Vignir Júlíusson
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 afgreidd með tæplega 900.000 kr afgangi. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd samþykkir fjárhagsáætlunina og vísar henni til bæjarstjórnar.
2.
Skólamáltíðir : samningur og fyrirkomulag
Framkvæmdastjóri upplýsir að samningur um skólamat er útrunnin. Bæjarráð hefur fjallað um málið og ákvað að kanna áhuga veitingaaðila á svæðinu. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd óskar eftir svari frá bæjarráði hið fyrsta um framhaldið þar sem þetta hefur áhrif á rekstur heilbrigðisstofnunarinnar.
3.
Vorfundur FSIÖ á Hornafirði
Sagt frá fundi Félags stjórnenda í öldrunarþjónstu sem verður haldinn á Höfn í lok apríl. Von er á um 70-80 stjórnendum.