Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
38. fundur
23. maí 2018
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Vignir Júlíusson
aðalmaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir
fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2017
Sigurjón Ö. Arnarson, endurskoðandi sveitarfélagsins fór yfir ársreikning HSU Hornafirði. Afkoma af rekstri stofnunarinnar á árinu 2017 var jákvæð um 13,7 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé stofnunarinnar í árslok var jákvætt um 15,8 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er til ársreiknings varðandi ráðstöfun afkomu ársins og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum. Óvissa ríkir um endanlegt uppgjör á lífeyrisskuldbindingu stofnunarinnar en stjórnendur eru að leita samninga við ríkið vegna þessa. Það er mat stjórnenda að lífeyrisskuldbinding stofnunarinnar hvíli að öllu leyti á ríkinu. Af þeim sökum er lífeyrisskuldbinding ekki færð í ársreikning stofnunarinnar. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar góðri rekstrarniðurstöðu og vísar ársreikningi til umfjöllunar í bæjarráði.
2.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2018
Reksturinn er í jafnvægi.
3.
Samningur: Bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis
Þann 17. maí var ritað undir samning um byggingu 30 rýma hjúkrunarheimili. Heimilið mun rísa við núverandi hjúkrunarheimili. Skipaður verður starfshópur um framkvæmdina og á sveitarfélagið tvo fulltrúa í starfshópnum. Framkvæmdasýsla ríksins heldur utan um og stýrir framkvæmdinni. Áætlanir gera ráð fyrir að heimilið verði fullbúið árið 2021. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar undirritun langþráðs samnings og óskar Hornfirðingum til hamingju.
4.
Samningar SFV um rekstur dagdvala
Nú standa yfir viðræður milli Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), sveitarfélaga og Sjúkratryggina Íslands (SÍ) um rekstur dagdvala fyrir aldraða. Viðræður ganga hægt. Hrafnista lét gera kostnaðargreiningu á rekstri dagdvala þar sem kemur í ljós að tilboð SÍ miðað við kröfulýsingu er 30% lægra en áætlaður rekstrarkostnaður. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur áherslu á að samningar um framlög vegna dagdvala verði í samræmi við raunkostnað.
5.
Viðræður SFV um kostnaðarútlagar í hjúkrunarþjónustu
Viðræður hafa staðið í nokkurn tíma milli SFV og SÍ um kostnaðarútlaga í rekstri hjúkrunarheimila. Hjúkrunarheimili hafa getað sótt um endurgreiðslu til SÍ fyrir óvenju hárra greiðslna vegna aðgerða, sjúkraflutninga, lyfja o.fl. hjá íbúum. Viðræður standa enn yfir og vonandi næst sátt um fyrirkomulag greiðslnanna sem fyrst.
6.
Starfsmannamál HSU Hornafirði
Mönnun sumarsins lítur nokkuð vel út, þó ríkir óvissa um seinnihluta sumars á Skjólgarði.