Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

39. fundur
2. júlí 2018 kl. 16:30 - 18:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Sveitarstjórnarkosnignar 2018 kynning og kjörbréf
Málsnúmer 201806038
Bryndís Bjarnason fór yfir kynningarefni fyrir nýja nefndarmenn.
2.
Erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar 2015
Málsnúmer 201412054
Matthildur fór yfir erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar. Ákveðið er að fundartími nefndarinnar verði framvegis fjórði þriðjudagur hvers mánaðar kl. 16:30. Næsti fundur verður 28. ágúst.
3.
Siðareglur kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 201411059
Nefndarmenn hvattir til að kynna sér siðareglur kjörinna fulltrúa.
4.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2018
Málsnúmer 201803002
Farið er yfir rekstrarstöðu mánaðarlega, reksturinn fyrstu 5 mánuði ársins er í jafnvægi.
5.
Stefna HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201709308
Matthildur kynnti stefnu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Hornafirði sem var samþykkt fyrr á þessu ári.
6.
Samningur: Bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201805077
Ritað var undir samning um byggingu nýs hjúkrunarheimilis þann 17. maí síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarráðuneyti er líklegt að boðað verði til fundar í starfshópi um bygginguna í næstu viku.
7.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2017 - 2019
Málsnúmer 201611092
Matthildur kynnti þjónustusamninga um rekstur heilbrigðisþjónustunnar á Hornafirði.