Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
40. fundur
28. ágúst 2018
kl.
16:30
-
18:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Jón Áki Bjarnason
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir
fulltrúi starfsmanna
Haukur Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Elín Magnúsdóttir
1. varamaður
Björk Pálsdóttir
2. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Ársskýrsla HSU Hornafirði 2017
Framkvæmdastjóri fór yfir ársskýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2017.
2.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Matthildur greindi frá fundi sem hún átti í Velferðarráðuneytinu í júlí mánuði. Þar kom fram að málið liggur hjá Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir. Samstarfsnefndin þarf að gefa leyfi fyrir framkvæmdinni áður en lengra er haldið. Nefndin hefur enn ekki fundað og munu starfsmenn ráðuneytis verða í sambandi um leið og nefndin afgreiðir málið. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd þykir miður að málið sé ekki komið lengra og bindur vonir við að leyfisveiting fáist sem fyrst. Framkvæmdastjóra falið að ýta á eftir málinu.
3.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2018
Halli er á rekstrinum þar sem ekki hafa borist föst fjárframlög í gegnum HSU fyrir júlí og ágúst mánuði. Að því frátöldu er reksturinn á áætlun. Framkvæmdastjóri heldur áfram að þrýsta á að fjárframlög berist.
4.
Ráðning hjúkrunarstjóra Skjólgarði
Ásgerður Gylfadóttir hefur sagt upp starfi sínu sem hjúkrunarstjóri. Gengið hefur verið frá ráðningu hjúkrunarstjóra á Skjólgarð hjúkrunar- og dvalarheimili. Helena Bragadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin og mun hún hefja störf 15. október næstkomandi. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd þakkar Ásgerði fyrir vel unnin störf undanfarin ár og býður Helenu Bragadóttur velkomna til starfa.
5.
Staða framkvæmdastjóra HSU Hornafirði
Matthildur hefur verið ráðin sem bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar frá og með 1. september. Hún mun því láta af störfum hjá heilbrigðisstofnuninni. Auglýst hefur verið eftir nýjum framkvæmdastjóra og rennur umsóknarfresturinn út þann 3. september næstkomandi. Matthildur mun sinna störfum framkvæmdastjóra þar til nýr starfsmaður verður ráðinn.
6.
Menntun fyrir alla
Vakin er athygli á fundi þann 31. október fyrir Heilbrigðis- og öldrunarnefnd.