Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
42. fundur
21. nóvember 2018
kl.
16:30
-
18:10
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Sverrir Þórhallsson
aðalmaður
Elín Freyja Hauksdóttir
starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir
fulltrúi starfsmanna
Haukur Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Sigrún Sigurgeirsdóttir
1. varamaður
Helena Bragadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Heimahjúkrun og aðhlynning aldraðra í heimahúsum
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fjallaði um bréf frá aðstandendum aldraðra sem þiggja heimaþjónustu. Aðstandendur krefjast þess að sveitarfélagið fari í undirbúning að samþættingu þjónustu í heimahús þannig að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir 2019 taki mið af nýju skipulagi og bættri þjónustu. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd tekur undir þessar tillögur og leggur áherslu á að vinna að frekari samþættingu hefjist strax í janúar á næsta ári.
2.
Málþing um stöðu eldri borgara
Haukur kynnti erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem óskað er samstarfs um að halda málþing á næsta ári um stöðu eldri borgara í nútíð og framtíð. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd tekur undir hugmyndir félagsins og er tilbúin til samstarfs um að standa að málþinginu. Starfsmanni falið að fylgja málinu eftir í samstarfi við félagið.
3.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Framkvæmdastjóri fór yfir fundargerð stýrihóps um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Unnið er að gerð samkeppnislýsingar um hönnun heimilisins. Miðað er við að samkeppni um hönnun heimilisins verði auglýst í janúar 2019 og niðurstöður verði kynntar í apríl.
4.
Öryggisstefna í tölvumálum
Unnið er að endurskoðun Öryggisstefnu í tölvumálum fyrir heilbrigðisstofnunina. Drög að stefnu lögð fram til kynningar.
5.
Gjaldskrá 2019
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd samþykkir gjaldskrá miðað við breytingar sem ræddar voru á fundinum.
6.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2018
Reksturinn er í jafnvægi.
7.
Heimsókn frá Velferðarráðuneyti
Von er á fjórum starfsmönnum Velferðarráðuneytis í heimsókn þann 22. nóvember til að kynna sér aðstæður vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis og kynna sér rekstur stofnunarinnar.