Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
43. fundur
18. desember 2018
kl.
16:30
-
17:40
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Jón Áki Bjarnason
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Helena Bragadóttir
starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir
fulltrúi starfsmanna
Haukur Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2018
Ekki hafa borist greiðslur frá HSU fyrir nóvember og desember. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd lýsir yfir áhyggjum af stöðunni og felur starfsmanni að þrýsta á Velferðarráðuneyti og stjórnendur HSU svo greiðslur berist.
2.
Fjárhagsáætlun 2019
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2019. Ekki hafa fengist upplýsingar um tekjuflæði frá ríki fyrir árið 2019. Fjárhagsáætlun verður lögð fyrir á ný í janúar þegar allar upplýsingar hafa borist.
3.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Ekki hefur verið fundað í stýrihópnum frá síðasta fundi í heilbrigðis- og öldrunarnefnd. Næsti fundur í stýrihópnum er fyrirhugaður á morgun miðvikudag þar sem unnið verður áfram að samkeppnislýsingunni. Vonir standa til að auglýsa hönnunarsamkeppnina í janúar. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur áherslu á að horft sé til framtíðar við hönnun byggingarinnar og gert ráð fyrir stoðrýmum s.s. samkomusal, hárgreiðslu o.fl. í byggingunni.