Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

44. fundur
22. janúar 2019 kl. 16:30 - 18:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Áki Bjarnason aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Helena Bragadóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir fulltrúi starfsmanna
Haukur Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Málþing um stöðu eldri borgara
Málsnúmer 201811019
Kynning á stöðu undirbúnings málþingsins.
Fundurinn vill bíða með frekari ákvörðunartöku varðandi undirbúning fyrir málþingið þar til það hefur hlotið umfjöllun í Öldungaráði en málið er þar á dagskrá á næsta fundi þeirrar nefndar. Að því loknu er starfsmönnum nefndanna falið, að bera saman bækur sínar og leggja svo þær niðurstöður fram til nánari umfjöllunar.
2.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Framkvæmdarstjóri upplýsir nefnd um stöðu bygginu nýs hjúkrunarheimilis.
Framkvæmdastjóri upplýsti um stöðu byggingar á nýju hjúkrunarheimili. Meðal annars sagt frá að ekki fékkst samþykkt, að sjúkrarýmin færist með inn á nýja hjúkrunarheimilið heldur skuli vera áfram inn á núverandi deild.
3.
Fjárhagsáætlun 2019
Málsnúmer 201810039
Fjárhagsáætlun fyrir 2019 lögð fram.Meðfylgjandi eru nýjar reglugerðir um breytta gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands varðandi breytta gjaldskrá dvalargjalda í hjúkrunarrýmum og dagdvöl.
Í fjárhagsáætlunargerð var gert ráð fyrir verðlagshækkunum og hækkun á daggjöldum í takt hækkun á RUG stuðli hjúkrunarheimilisins en varð ekki reyndin. Ekki er tekið tillit til þessa þátta í nýrri gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands sem tók gildi þ. 1. janúar 2019.
Einnig lágu ekki fyrir upplýsingar um hækkun á leigu húsnæði frá Fasteignum ríkisins þegar fjárhagsáætlunin var unnin.
Í ljósi þessa frestar fundurinn samþykkt á fjárhagsáætlun þar til framkvæmdarstjóri hefur setið fund með Samtaka fyrirtækja í Velferðarþjónustu þ. 1. febrúar. Nefndin mun koma aftur saman þ. 5. febrúar og fara aftur yfir stöðu mála að því loknu.
Framkvæmdastjóra er falið, að skoða og koma með tillögur á næsta fundi um hvar megi skera niður til að mæta hækkunum svo fjárhagsáætlun standist lög.
4.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Málsnúmer 201806069
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa ályktað um breytta gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands og að SÍ hafi ekki viljað endurnýja rammasamningin. Kynna málið fyrir nefndinni.
Vísa í liðinn um fjárhagsáætlunina og niðurstöðu þess liðs.
5.
Samningur um sálfræðiþjónustu
Málsnúmer 201901079
Heilsugæsla HSU Hornafirði gerði nýverið samning um sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna. Samningurinn kynntur.
Fundur fagnar tilkomu þessa þjónustusamnings.