Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

46. fundur
26. mars 2019 kl. 16:30 - 18:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Jón Áki Bjarnason aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Helena Bragadóttir starfsmaður HSSA
Haukur Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Sigrún Sigurgeirsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Málþing um stöðu eldri borgara
Málsnúmer 201811019
Kynna stöðu undirbúnings málþings um stöðu eldri borgara í nútíð og framtíð. Málið hlaut umfjöllun bæjarráðs þ. 11. mars síðastaliðinn. Tillaga að dagskrá er komin fram og verður lögð fram fyrir nefndina.
Búið er að bóka fyrirlestrarsalinn í Nýheimum þ. 22. maí. Drög að dagskrá liggur fyrir og verður unnið að henni áfram.
2.
Samningar um rekstur HSU Hornafirði 2019
Málsnúmer 201903107
Samningar um rekstur HSU Hornafirði renna út á þessu ári. Heilbrigðisráðherra hringdi í bæjarstjóra til að upplýsa um stöðu mála og afstöðu starfsmanna ráðuneytisins til málsins. Hefja þarf undirbúning að viðræðum um endurnýjun samninganna með erindi til heilbrigðisráðuneytisins.Ráðherra upplýsti um, að eftirfarandi möguleikum hafi verið stillt upp af hálfu starfsmanna ráðuneytisins sem eru, að ekki verði samið við Hornafjörð og starfsemin fer undir HSU eða að samið um reksturinn með aðkomu HSU. Óskað er eftir áliti nefndar til bæjarráðs.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur á þá áherslu, að samið verði um rekstur heilbrigðisþjónustu með sambærilegum hætti og nú er í gildi.

Nefndin vill ekki að sú samþætta starfsemi sem hefur skapast síðastliðin tuttugu ár fari í súginn.

Nefndin leggur áherslu á, að tillögur um aukna samþættingu heilbrigðis-, öldrunar- og félagsþjónustu verði lokið í maí eins og áætlanir gera ráð fyrir.
3.
Stjórnsýslukæra gegn Sjúkratryggingum Íslands vegna gjaldskrár daggjalda hjúkrunarrýma fyrir 2019
Málsnúmer 201903112
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu undirbjuggu stjórnsýslukæru á hendur Sjúkratryggingum Íslands vegna gjaldskrá vegna hjúkrunarrýmum fyrir árið 2019. Ástæða þess er, að ekki er tenging við liðið ár í RUG stuðli eins og verið hefur. Stofnunin verður því fyrir verulegu tekjutjóni.
Nefndin samþykkir að leggja fram stjórnsýslukæru á hendur Sjúkratryggingum Íslands eins og aðrir aðilar í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa gert.
4.
Rekstrarstaða heilbrigðisstofunar suðurlands á Hornafirði 2019
Málsnúmer 201903011
Rekstrarstaða HSU Hornafirði kynnt.
Málinu frestað til næsta fundar þar sem bókun tekjuliða vantar inn í rekstrarstöðuna.