Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

53. fundur
23. október 2019 kl. 16:30 - 18:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir fulltrúi starfsmanna
Haukur Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Sigrún Sigurgeirsdóttir 1. varamaður
Björk Pálsdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Fyrirspurn um heimahjúkrun og þjónustu við aldraða
Málsnúmer 201910025
Fyrirspurn um heimahjúkrun og þjónustu við aldraða lögð fram.
Í febrúar var skipaður starfshópur um samþættingu félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Hópurinn kynnti milliniðurstöður á málþinginu "Er gott að eldast á Hornafirði" og ber skýrslan heitið "Þjónustan heim". Skýrslan var til umfjöllunar í tilheyrandi nefndum og fékk jákvæð viðbrögð. Starfshópurinn mun hefja störf að nýju í nóvember þar sem unnið verður að því að koma í framkvæmd niðurstöðum skýrslunnar og vinna úr því sem út af stóð í erindisbréfi hópsins.
2.
Þarfagreining á húsnæðisþörf eldri Hornfirðinga
Málsnúmer 201906020
Bæjarráð vísaði málinu til félagsmálanefndar, heilbrigðis,og öldrunarnefndar og umhverfis,og skipulagsnefndar.
Nefndin fór yfir niðurstöður könnunarinnar. Miðað við hversu lágt svarhlutfallið er telur nefndin niðurstöðurnar sýni ekki heildarmynd á þörf húsnæðis og þjónustu við aldraða. Nefndin leggur til, að næsta þegar sambærileg könnun verður framkvæmd, að leitað verði leiða til að tryggja hærra svarhlutfall. Einnig mættu spurningarnar um þjónustuþörf miðast við þörf svarandans.
3.
Umsögn um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum 41. mál
Málsnúmer 201910047
Fyrir liggur tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 41. mál. Óskað er eftir að umsagnir berist eigi síðar en 1. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.isEf engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0041.html
Nefndin hvetur fólk til að kynna sér málið í samráðsgátt alþingis og senda inn athugasemdir ef einhverjar eru.
4.
Reglur um birtingu gagna með fundargerðum
Málsnúmer 201909053
Bæjarráð vísaði reglunum til umsagnar í fastanefndum þar sem þær vinna skv. þessum reglum í framhaldinu.
Reglurnar lagðar fram til umsagnar. Nefndin gerir engar athugasemdir.