Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
54. fundur
3. desember 2019
kl.
16:15
-
18:15
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Sverrir Þórhallsson
aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Helena Bragadóttir
starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Farið yfir framtíð og starf HSU Hornfirði.
Framkvæmdarstjóri sagði frá vinnu við samningagerð við HSU.
2.
Heimahjúkrun og þjónusta við aldraða
Framkvæmdastjóri HSU Hornafirði sagði frá, að frá byrjun desember mun starfsfólk dvalarheimilisins Mjallhvít sinna kvöld og helgarþjónustu eldri borgara á Ekru svæðinu að því gefnu að þjónustunotandinn sé með samþykkta umsókn og færnimat frá heimahjúkrun HSU Hornafirði.
3.
Ósk um samstarf vegna hugmyndar um nýja björgunarmiðstöð á Höfn
Þarfagreining um björgunarmiðstöð lögð fram til kynningar.
Framkvæmdastjóri HSU Hornafirði og slökkviliðsstjóri Hornafjarðar unnu sameiginleg að þarfagreiningu um byggingu sameiginlegs björgunarhús. Var niðurstaða hennar, að lagt er til, að slíkt hús verði reist. Í ljósi þess, að þjónustusamningnum við HSU Hornafirði hefur verið sagt upp og samningaviðræður við HSU eru í gangi er endanlega niðurstaða málsins háð þeim samningi.
4.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Farið yfir stöðuna á hönnun nýs hjúkrunarheimilis.
Samningar hafa náðst milli Basalt arkitektstofu og Eflu verkfræðistofu annars vegar og framkvæmdasýslu ríkisins hins vegar. Loka hönnun er komin í gang.
5.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Launaáætlun HSU Hornafirði fyrir 2020 lögð fram.
Launaáætlun fyrir HSU Hornafirði var lögð fram til umfjöllunar.
6.
Rekstrarstaða heilbrigðisstofunar suðurlands á Hornafirði 2019
Farið yfir rekstrarstöðu HSU Hornafirði.
Framkvæmdarstjóri fór yfir rekstrarstöðuna eins og hún var þ. 30.11.2019. Reksturinn er ennþá í halla en hefur minnkað umtalsvert.