Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
55. fundur
27. janúar 2020
kl.
16:15
-
17:35
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Sverrir Þórhallsson
aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir
starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir
fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Læsisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Vísað til umsagna úr fræðslu- og tómstundarnefnd.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd gerir ekki athugasemd við læsisstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
2.
Verklagsreglur vegna ofbeldis eða óviðeigandi framkomu starfsmanna gagnvart börnum
Bæjarráð vísaði málinu til umfjöllunar í nefndum.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd gerir ekki athugasemd við verklagsreglurnar og fagnar tilkomu þessa verkferla.
3.
Auglýsa eftir hjúkrunarstjóri hjúkrunarsviðs HSU Hornafirði jan. 2020
Hjúkrunarstjóri hjúkrunarsviðs hefur sagt upp störfum frá og með 30. desember 2019. Auglýst er eftir nýjum í hennar stað.
4.
Lífeyrisskuldbindingar Heilbrigðisstofnunar
Drög að forsendum uppgjörs lífeyrisskuldbindinga HSU Hornafirði liggja fyrir.
Framkvæmdarstjóri fór yfir drög að forsendum uppgjörs lífeyrissjóðsskuldbindinga. Áfram er unnið að loka uppgjöri og endanlega niðurstaða verður lögð fyrir nefndina þegar hún liggur fyrir.
5.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Sjúkratryggingar Íslands, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband íslenskra sveitafélaga hafa undirritað rammasamning um þjónustu hjúkrunarheimila sem HSU Hornafirði er hluti af. Leiðrétting hlýst af þessu varðandi RUG hjúkrunarþyngdarstuðul og uppgjörs greiðsla vegna þessa.
Framkvæmdarstjóri kynnti rammasamning um þjónustu hjúkrunarheimila sem HSU Hornafirði er hluti af. Framkvæmdarstjóri hefur undirritað samninginn fyrir hönd HSU Hornafirði. Greiðsla vegna uppgjörs 2019 á eftir að berast frá SÍ.
6.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Kynna stöðu samningsviðræðna um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði milli HSU Hornafirði og HSU.
Framkvæmdarstjóri fór yfir stöðu viðræðnanna. Einn samningsfundur hefur verið á árinu og næsti áætlaður í febrúar. Rekstrarlegur aðskilnaður er áætlaður þann 1. apríl næstkomandi. Framkvæmdarstjórn HSU ásamt yfirmönnum sjúkraflutninga komu á starfsmannafund þann 16. janúar síðastaliðinn til að gefa starfsfólki kost á að spyrja og fara yfir stöðuna.
7.
Rekstrarstaða heilbrigðisstofunar suðurlands á Hornafirði 2019
Rekstrarstaða HSU Hornafirði árslok 2019.
Máli frestað til næsta fundar þar sem margir tekju- og rekstrarliðir liggja ekki fyrir.