Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

56. fundur
2. mars 2020 kl. 17:00 - 18:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Jón Áki Bjarnason aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Ragna Pétursdóttir fulltrúi starfsmanna
Sigrún Sigurgeirsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Sóttvarnir: Wuhan-kórónaveira
Málsnúmer 202001112
Viðbragðsáætlun HSU Hornafirði kynnt.
Elín Freyja Hauksdóttir læknir HSU Hornafirði fór yfir viðbragðs- og sóttvarnaráætlun stofnunarinnar og hvernig hún hefur verið uppfærð í takt við Covid-19 veiruna.
2.
323. mál til umsagnar
Málsnúmer 202002113
Velferðarnefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum (réttur til einbýlis á öldrunarstofnunum), 323. mál.Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0366.html
Lagt fram til kynningar. Fólk er hvatt til að kynna sér málið. Hægt er að senda inn umsagnir rafrænt til og með 10. mars. Leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html
3.
Auglýsa eftir hjúkrunarstjóri hjúkrunarsviðs HSU Hornafirði jan. 2020
Málsnúmer 202001080
Ráðning hjúkrunarstjóra Skjólgarðs - staða máls kynnt.
Umsóknarfrestur er liðinn og verið er að vinna í umsóknum.
4.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Málsnúmer 201907087
Staða máls kynnt um aðskilnað reksturs HSU Hornafjarðar og Skjólgarðs.
Framkvæmdarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi samningaviðræður.
5.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Málsnúmer 201909059
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020 - farin yfir stöðu máls.
Framkvæmdarstjór gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020. Gert er ráð fyrir að ljúka henni í lok mars.
6.
Rekstrarstaða heilbrigðisstofunar suðurlands á Hornafirði 2019
Málsnúmer 201903011
Rekstrarstaðan HSU Hornafirði í lok árs 2019. Farið yfir stöðuna.
Framkvæmdarstjóri fór yfir rekstrarstöðu HSU Hornafirði eins og staðan var um áramótin. Ennþá á eftir að rýna betur rekstrarstöðuna.