Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

57. fundur
30. mars 2020 kl. 16:30 - 18:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Áki Bjarnason aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Elín Freyja Hauksdóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Bæjarráð vísar endurskoðun á jafnréttisáætlun til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins.
Jafnréttisáætlun lögð fram til kynningar.
2.
Rekstrarstaða heilbrigðisstofunar suðurlands á Hornafirði 2019
Málsnúmer 201903011
Fara yfir rekstrar stöðu HSU Hornafirði í árslok 2019.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði lögð fram ásamt minnisblaði starfsmanna með helstu þáttum rekstrarstöðunnar. Rekstrartap nam rétt tæpri 41 milljón á árinu 2019. Starfsmönnum falið að rýna frekar í launaliði rekstrarstöðunnar.
3.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Málsnúmer 201907087
Staða samningsviðræðna milli Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Sveitarfélagsins Hornafjarðar kynnt.
Farið yfir stöðu samningsferlis milli HSU og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Heilsugæslustöðin og sjúkraflutningar verða flutt yfir til HSU núna 1. apríl næstkomandi. Eftir fund HSU og bæjarstjórnar var ákveðið, að sveitarfélagið muni leggja fram samningstillögu til HSU.
4.
Auglýsa eftir hjúkrunarstjóri hjúkrunarsviðs HSU Hornafirði jan. 2020
Málsnúmer 202001080
Kynning á nýráðnum hjúkrunarstjóra á Skjólgarð.
Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til starfa á Skjólgarð og tekur til starfa 1. júní næstkomandi. Nefndin býður henni velkomna starfa.
5.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Málsnúmer 201909059
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði tekin til umföllunar.
Fjárhagsáætlun hefur verið í vinnslu. Hún verður lögð fram á næsta fundi eða þegar allar forsendur fyrir rekstrinum liggja fyrir.
6.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Aðgerðir HSU Hornafirði vegna Covid faraldursins kynntar.
Elín Freyja Hauksdóttir læknir fór yfir stöðu mála.