Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

58. fundur
27. apríl 2020 kl. 16:30 - 17:40
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Halla Sigurðardóttir starfsmaður HSSA
Haukur Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Málsnúmer 201907087
Staða samningsviðræðna kynnt.
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri kom og kynnti stöðu samningsviðræðna. Viðræður hafa gengið vel að undanförnu. Samningurinn gefur tækifæri til að innleiða samþætt verklag félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar. HSU mun bera ábyrgð á starfsemi sjúkrarýma en kaupir þjónustu starfsmanna hjúkrunardeildar til að sinna hjúkrun. Rekstur heimahjúkrunar er í höndum hjúkunardeildar.
2.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Málsnúmer 201909059
Fjárhagsáætlun fyrir 2020 kynnt.
Farið var yfir drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og hugsanlegar aðgerðir til þess að hagræða í rekstrinum. Fjárhagsáætlunargerð hefur dregist vegna þess, að beðið var eftir að samningsviðræður sveitarfélagsins og HSU varðandi rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði myndi klárast. Búist er við að þeim ljúki á næstu dögum og þá verður hægt að klára fjárhagsáætlun.
3.
Rekstrarstaða Skjólgarðs
Málsnúmer 202004068
Rekstrarstaða HSU Hornafirði eftir fyrsta ársfjórðung kynnt.
Rekstrarstaða hjúkrunarsviðs fyrir fyrstu 3 mánuði ársins lögð fram miðað við fjárhagsáætluvn 2019. Ljóst er að reksturinn í samsvarandi halla og var á seinasta ári.
4.
Erindisbréf heilbrigðis- og öldrunarnefndar 2015
Málsnúmer 201412054
Í ljósi breytinga á rekstri stofnunarinnar þarf að endurskoðar erindisbréf nefndarinnar.
Umræður voru um fyrirkomulag og starfssvið heilbrigðis- og öldrunarnefndar eftir að heilsugæslusvið fór yfir til HSU. Ljóst er að erindisbréf nefndarinnar verður ekki óbreytt.
5.
Nafn heilbrigðisstofnunarinnar
Málsnúmer 202004070
Endurskoða þarf nafn stofnunarinnar í ljósi rekstarbreytinga.
Umræður voru um nafn heilbrigðisþjónustunnar. Ýmsar hugmyndir voru ræddar en lagt til að fresta nánari ákvörðun þar til samningur við HSU varðandi heilbrigðisþjónustu og skipurit sveitarfélagsins liggja fyrir.