Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
61. fundur
24. ágúst 2020
kl.
16:15
-
17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Sverrir Þórhallsson
aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Ragna Pétursdóttir
fulltrúi starfsmanna
Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir
hjúkrunarstjóri
Guðbjörg Sigurðardóttir
formaður félags eldri hornfirðinga
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Sjúkratryggingar Íslands hækkuðu smæðarálagið út samningstímabilið. Málið kynnt.
Nefndin fagnar því, að Sjúkratryggingar Íslands hafi komið með hækkun smæðarálags til minni hjúkrunarheimila sem verður til þess að tekjur til Skjólgarðs hækkar og lagar rekstrarstöðuna.
2.
Umsókn um styrk til að auka félagsstarf fullorðinna vegna Covid sumarið 2020
Skjólgarður fékk styrk frá heilbrigðisráðuneytinu til að auka félagsstarf fullorðinna vegna Covid.
Fundurinn fagnar þessum styrk enda þarft að efla virkni eldri borgara eftir álag vegna heimsfaraldursins Covid 19. Því miður varð að fresta því, að setja verkefnið af stað vegna annarri bylgju Covid 19 en farið verður í það um leið og aðstæður leyfa.
3.
Skólamáltíðir : samningur og fyrirkomulag
Hagkvæmmisútreikningar á matarskammtil til grunnskólans er lokið og niðurstöður lagðar fram til umfjöllunar.
Samkvæmt hagkvæmnisútreikningum til grunnskólans er raunkostnaður matarskammtsins meiri en samningurinn milli Skjólgarðs og Grunnskóla Hornafjarðar segir til um. Starfsmanni falið að ræða við fræðslustjóra til að leita leiða til að Skjólgarður sé ekki að greiða fyrir tap á útseldum mat til grunnskólans.
4.
Kostnaður matarskammts Skjólgarði og fyrirkomulag
Hagkvæmnisútreikningur matarskammtsins og rýni í fyrirkomulag á gjaldtöku útselds matar frá Skjólgarði var framkvæmd. Tillögur að breyttu fyrirkomulagi lagðar fram í kjölfar þeirrar vinnu.
Nefndin samþykkir tillögur að breyttu fyrirkomulagi á gjaldtöku útselds matar frá Skjólgarði með tilliti um laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Málinu vísað til umræðu í bæjarráði.
5.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Framkvæmdastjóri kynnir stöðuna á byggingu nýja hjúkrunarheimilins.
Staðan er að hönnun er lokið og útboðsgögn tilbúin en þá kom í ljós að kostnaðaráætlun hönnuða er ekki í takt við kostnaðaráætlun sem lagt var upp með í upphafi. Framkvæmdasýsla ríkisins, sem heldur utan um verkefnastjórn,bíður eftir skýringum á því áður en hægt verður að bjóða framkvæmdina út. Því hefur útboðinu seinkað vegna þessa.
6.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Fjárhagsáætlun Skjólgarðs fyrir 2020 lögð fram til umfjöllunar.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við fjárhagsáætlunina sem tekin var fyrir í bæjarráði 13. júlí síðastliðinn. Stjórnendum Skjólgarðs áfram falið að leita leiða til hagræðinga.
7.
Rekstrarstaða Skjólgarðs
Rekstrarstaða Skjólgarðs kynnt.
Rekstrarstaða Skjólgarðs lögð fram.