Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

62. fundur
28. september 2020 kl. 16:15 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Áki Bjarnason aðalmaður
Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir hjúkrunarstjóri
Guðbjörg Sigurðardóttir formaður félags eldri hornfirðinga
Finnur Smári Torfason 2. varamaður
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Heimsmarkmiðin og stefnumótun lögð fram til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins.
Heimsmarkmiðin og stefnumótunin lögð fram til kynningar.
2.
Nafn heilbrigðisstofnunarinnar
Málsnúmer 202004070
Nafnið Skjólgarður er ekki laust í fyrirtækjaskrá. Lagt er til að nafnið verði því Skjólgarður - öldrunarþjónusta.
Nefndin samþykkir viðbót í nafnið og því mun nafnið vera; Skjólgarður - öldrunarþjónusta.
3.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Nýtt skipurit Sveitarfélags Hornafjarðar er komið í gildi. Farið yfir þýðingu þess gagnvart Skjólgarði.
Við tilkomu nýja skipuritsins fer Skjólgarður undir Velferðarsvið í flokknum málefni eldri borgara. Nefndin gerir ekki athugasemdir við skipuritið.
4.
Samningur um lyfjakaup, skömmtun og þjónustu
Málsnúmer 202004096
Lyfjaver er með hugbúnaðarlausn sem eykur lyfjaöryggi og lyfjafræðingsráðgjöf og minnkar kostnað. Skjólgarður óskaði eftir að innleiða þennan hugbúnað.
Stjórnendur Skjólgarðs hafa dregið beiðni sína tilbaka í ljósi rekstrarstöðunnar.
5.
Gjaldskrár 2020
Málsnúmer 201909057
Sem undirbúningi fjárhagsáætlunar 2021 þarf að yfirara gjaldskrá 2021.
Nefndin frestar ákvörðun í þessum lið til næsta fundar en felur starfsmanni að reikna út heildarkostnað við niðurgreiðslu máltíða starfsmanna Skjólgarðs. Starfsmanni einnig falið að kanna hvenær hægt sé að koma hækkun á mat til félagsþjónustunnar í framkvæmd.
6.
Fjárhagsáætlun 2021
Málsnúmer 202009023
Undirbúningur fjárhagsáætlunar 2021 hafin og því þarf að yfirfara gjaldskrár Skjólgarðs.
Undirbúningur fjárhagsáætlunar 2021 hafin og starfsmanni falið að halda áfram undirbúningi hennar. Nefndin leggur áherslu á að stjórnendur geri raunhæfar fjárhagsáætlanir og þar verði leitað allra leiða til hagræðingar til að koma í veg fyrir áframhaldandi skuldasöfnun og að reksturinn komist í jafnvægi.
7.
Rekstrarstaða Skjólgarðs
Málsnúmer 202004068
Rekstrarstaða Skjólgarðs kynnt.
Rekstur Skjólgarðs er áfram mjög þungur. Nefndin leggur áherslu á að stjórnendur leiti allra leiða til hagræðingar til að koma í veg fyrir áframhaldandi skuldasöfnun og að reksturinn komist í jafnvægi.
8.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Málsnúmer 201806069
Tillögur varðandi breytingar á samningi SÍ og hjúkrunarheimila lagðar fram.
Nefndin fagnar þessum tillögum og samþykkir þær og felur starfsmanni að kostnaðarmeta þær. Tillögunum vísað til umræðu í bæjarráði.
9.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Ósk um að bæta við á dagskrá umræðu um stöðu Skjólgarðs í ljósi aðstæðna Covid smita í samfélaginu.
Starfsmenn sögðu frá stöðu mála varðandi Covid-19 faraldrinum sem tengjast Skjólgarði. Lokað hefur fyrir heimsóknir á allar deildir Skjólgarðs vegna Covid smita í samfélaginu. Auknar sóttvarnarráðstafanir eru sömuleiðis í dagdvöl Ekrunnar og þá sér í lagi í kringum hádegismatinn. Fólki í hádegismat er dreift í þrjá hópa sem koma á misjöfnum tímum. Það er mikil áhersla lögð á að halda Ekrunni opinni. Nefndin vill koma á framfæri miklu þakklæti til starfsmanna Skjólgarðs á þessum krefjandi tímum.
10.
Fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 201909012
Óskað er eftir að fjalla aftur um fjárhagsáætlun Skjólgarðs fyrir 2020 þar sem það fórst fyrir að setja inn viðauka inn í áætlunina sem tengjast tekjuliðum stofnunarinnar. Einnig er óskað eftir að uppfæra upphæðir þeirra tekjuliða er tengjast samningi sveitarfélagsins og Heilbrigðisstofnun suðurlands.
Nefndin samþykkir að starfsmaður uppfærir fjárhagsáætlunina fyrir 2020 og leggi fram til umræðu og samþykktar á næsta fundi heilbrigðis- og öldrunarnefndar.