Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
63. fundur
26. október 2020
kl.
16:15
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Sverrir Þórhallsson
aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir
hjúkrunarstjóri
Guðbjörg Sigurðardóttir
formaður félags eldri hornfirðinga
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri Skjólgarðs
Dagskrá
1.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Framkvæmdastjóri upplýsti nefndina um að stöðu undirbúnings verkefnisins. Það verður fundur hjá framkvæmdasýslu ríkisins um miðja þessa viku. Það er von um að útboð fari af stað fljótlega í kjölfar hans.
2.
Sóttvarnir: COVID-2019
Farið yfir stöðu Skjólgarðs er í heimsfaraldrinum Covid - 19.
Hjúkrunarstjóri Skjólgarðs upplýsti um þær sóttvarnarreglur sem eru við lýði í dag á Skjólgarði. Nefndin vill koma á framfæri þakklæti til starfsfólks Skjólgarðs fyrir gott og óeigingjarnt starf.
3.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Farið yfir stöðu samningsviðræðna við Sjúkratryggingar Íslands.
Samningsviðræður við Sjúkratryggingar Íslands standa yfir. Áætlað er að ljúka viðræðum á næstu vikum.
4.
Rekstrarstaða Skjólgarðs
Rekstrarstaðan kynnt.
Rekstrarstaða Skjólgarðs er áfram mjög þung og halli í samræmi við síðustu mánuði.
5.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Uppfærð fjárhagsáætlun fyrir 2020 lögð fram til umfjöllunar.
Uppfærð fjárhagsáætlun 2020 fyrir Skjólgarð lögð fram þar sem búið er að setja inn viðauka inn í áætlunina sem tengjast tekjuliðum stofnunarinnar og samningi sveitarfélagsins og Heilbrigðisstofnun suðurlands. Nefndin gerir ekki athugasemd við fjárhagsáætlunina enda er hún í samræmi við rekstrarstöðuna eins og hún er í dag.
6.
Gjaldskrár 2020
Gjaldskrá Skjólgarðs fyrir árið 2021 tekin fyrir.
Ákvörðun um gjaldskrá 2021 frestað til næsta fundar.