Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

65. fundur
14. desember 2020 kl. 16:15 - 17:45
Teams Meating
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson formaður
Kolbrún Reynisdóttir varaformaður
Sverrir Þórhallsson aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Áki Bjarnason aðalmaður
Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir hjúkrunarstjóri
Guðbjörg Sigurðardóttir formaður félags eldri hornfirðinga
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Málsnúmer 201806069
Bæjarstjóri kynnti stöðu mála varðandi samningaviðræður sem hafa verið í gangi seinustu vikur á milli sveitarfélagsins og Sjúkratrygginga Íslands.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd tekur undir ákvörðun bæjarstjórnar að standa við uppsögn rammasamnings Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Sjúkratrygginga Íslands um rekstur hjúkrunar- og dvalarrýma Skjólgarðs. Nefndin harmar einnig þá stöðu sem upp er komin varðandi það að ríkið skuli ekki koma til móts við sveitarfélagið með auknu fjárframlagi til að tryggja áframhaldandi rekstur sveitarfélagsins á hjúkrunar- og dvalarýmum.
2.
Lífeyrisskuldbindingar Heilbrigðisstofnunar
Málsnúmer 201901117
Bæjarstjóri kynnti samkomulag um lífeyrissjóðsskuldbindingar vegna B-sjóðs og það kynnt nefndinni.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar því að samkomulagi skuli vera að sigla í höfn og vonar að það verði skrifað undir samning þess lútandi fyrr en síðar.
3.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Bæjarstjóri kynnir stöðu undirbúnings byggingu nýja hjúkrunarheimilisins.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar því að undirbúningur útboðs á framkvæmdum við nýtt hjúkrunarheimili sé á loka metrunum og að útboð verði auglýst snemma á næsta ári.
4.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Farið yfir stöðu Skjólgarðs - öldrunarþjónustu varðandi sóttvarnir í heimsfaraldrinum Covid - 19.
Hjúkrunarstjóri og framkvæmdastjóri Skjólgarðs fóru yfir stöðuna hjá Skjólgarði - öldrunarþjónustu varðandi sóttvarnir. Nefndin vill koma á framfæri þakklæti sínu fyrir vel unnin störf á tímum Covid.
5.
Gjaldskrár 2020
Málsnúmer 201909057
Gjaldskrá Skjólgarðs fyrir árið 2021 tekin fyrir.
Nefndin samþykkir gjaldskrána fyrir útseldan mat frá Skjólgarði árið 2021.
6.
Rekstrarstaða Skjólgarðs
Málsnúmer 202004068
Rekstrarstaðan kynnt.
Rekstrarstaða Skjólgarðs er áfram mjög þung og halli er á rekstrinum.