Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
66. fundur
25. janúar 2021
kl.
17:30
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
formaður
Kolbrún Reynisdóttir
varaformaður
Sverrir Þórhallsson
aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Jón Áki Bjarnason
aðalmaður
Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir
hjúkrunarstjóri
Guðbjörg Sigurðardóttir
formaður félags eldri hornfirðinga
Starfsmenn
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Sóttvarnir: COVID-2019
Farið yfir stöðu Skjólgarðs - öldrunarþjónustu varðandi sóttvarnir í heimsfaraldrinum Covid - 19.
Búið er að bólusetja alla íbúa Skjólgarðs - öldrunarþjónustu í tvígang. Því verður hægt að rýmka heimsóknarreglur frá og með morgundeginum. Er það mikil gleðiefni.
2.
Lífeyrisskuldbindingar Heilbrigðisstofnunar
Samningur um lífeyrissjóðsskuldbindingarnar er hefur náðst og verða niðurstöður hans kynntar af bæjarstjóra.
Samningur hefur náðst um uppgjör lífeyrisskuldbindinga Skjólgarðs og var hann undirritaður rafrænt í desember 2020. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar því að búið sé að skrifa undir samning um lífeyrissjóðsskuldbindingarnar.
3.
Rekstrarstaða Skjólgarðs
Rekstrarstaðan fyrir árið 2020 kynnt.
Áframhaldandi hallarekstur.
4.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Niðurstöður samningaviðræðna við Sjúkratrygginga Íslands um rekstur Skjólgarðs kynntar.
Eftir nokkuð strembnar samningaviðræður við Sjúkratryggingar Íslands er það fagnaðarerindi að niðurstaða liggur fyrir en hún er að Vigdísarholt ohf. mun taka við rekstri Skjólgarðs - öldrunarþjónustu. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd fagnar því að óvissu hafi verið eytt um rekstur hjúkrunarheimilisins. Er það einlæg von nefndarinnar að nýjum rekstraraðila muni farnast vel á komandi tímum og stuðli að áframhaldandi uppbyggingu stofnunarinnar og haldi góðri samvinnu við alla hagsmunaðila.