Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
8. fundur
22. september 2015
kl.
16:30
-
17:30
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
formaður
Kristín Hermannsdóttir
varaformaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Vignir Júlíusson
1. varamaður
Sæmundur Jón Jónsson
2. varamaður
Pálína Sighvatsdóttir
fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Velferðarteymi fundargerðir
Það sköpuðust umræður um framreiðslu á hádegismat í Ekrunni um helgar líkt og er á virkum dögum. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd hvetur til þess að þetta verði skoðað frekar með tilliti til kostnaðar og samstarfs við Félag eldri Hornfirðinga.
2.
Rekstarstaða HSU Hornafirði 2015
Reksturinn er erfiður sem stendur. Aukinn kostnaður er vegna sjúkraflutninga og launakostnaðar. Enn hafa ekki borist launabætur frá HSU á Selfossi vegna launahækkana á árinu 2014 eða upplýsingar um hverjar upphæðirnar eru. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd er orðin langeyg eftir að fjármagnið berist. Það er einnig krafa að HSU Hornafirði fái hlutdeild í tækjaframlagi Velferðarráðuneytisins sem rann til HSU, 20 milljóna króna framlag.
3.
Samningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2013-2016
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd hefur mikinn áhuga á að endurnýja þjónustusamning um rekstur heilbrigðisþjónustu sem og stjórnendur stofnunarinnar. Við teljum að mikill árangur hafi náðst á þeim 19 árum sem sveitarfélagið hefur séð um reksturinn. Það hefur átt sér stað töluverð samþætting á þjónustu til íbúa svo sem í heimaþjónustu og teymisvinnu. Hjúkrunarrýmum hefur fækkað sem er afleiðing af heildstæðri heimaþjónustu sem hefur gert íbúum kleift að búa lengur heima. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd hvetur því bæjarstjórn til að beita sér fyrir því að þjónustusamningurinn verði endurnýjaður áður en núverandi samningur rennur út.
4.
Skjólgarður
Gerð var könnun á meðal starfsmanna til að kanna áhuga þeirra á að taka upp á ný nafnið Skjólgarður á hjúkrunarheimilið. Það er mjög skýr vilji starfsmanna til að taka upp nafnið á ný. Umræða hefur einnig farið fram í samfélaginu og fengið jákvæða umfjöllun. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd vinnur áfram með málið.
5.
Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra 2015
Byrjað er að undirbúa teikningar að stækkun sólskála í vesturenda hjúkrunardeildar. Stefnt að því að hefja framkvæmdir fljótlega á næsta ári. Einnig var úthlutað í nýtt sjúkrakallkerfi og eru tilboð í nýtt kerfi farin að berast og verður tekin ákvörðun um kaupin fljótlega.
6.
Flugslysaæfing 2015
Undirbúningur flugslysaæfingar er hafin. Æfingin verður 24. október. Það verða haldin námskeið næstu tvær helgar í vettvangsstjórnun. Undirbúningur hjá heilbrigðisstofnuninni er einnig að hefjast. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd hvetur íbúa til að bjóða sig fram til sjálfboðastarfa á æfingunni.