Fara í efni

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd

9. fundur
27. október 2015 kl. 16:30 - 17:45
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður
Kristín Hermannsdóttir varaformaður
Snorri Snorrason aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir aðalmaður
Pálína Sighvatsdóttir fulltrúi starfsmanna
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir starfsmaður HSSA
Ásgerður Kristín Gylfadóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Rekstrarstaða HSU Hornafirði 2015
Málsnúmer 201503043
Rekstrarstaðan er slæm. Nýting hjúkrunarrýma hefur ekki verið 100% sem hefur áhrif á tekjuflæði til stofnunarinnar. Kostnaður vegna reksturs sjúkrabíla eykst hratt vegna fjölgunar útkalla í héraðinu. Eins er launakostnaður yfir áætlun. Eftir fund með yfirstjórn HSU í dag kom fram að það munu koma inn launabætur vegna ársins 2014 og 2015 ásamt því að stofnunin mun fá hlutdeild í tækjaframlagi til HSU. Samhliða fara stjórnendur og starfsfólk yfir alla rekstrarþætti.
2.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201201073
Lovísa fór yfir fundi með starfsmönnum í Framkvæmdasjóði aldraðra og heilbrigðisráðherra. Ákveðið að undirbúa umsókn í framkvæmdasjóðinn fyrir næstu úthlutun með grófri áætlun samkvæmt ráðleggingum þeirra. Lögð til grundvallar sú vinna sem hefur verið unnin nú þegar ásamt frekari hugmyndavinnu með starfsfólki, íbúum og hagsmunaaðilum.
3.
Flugslysaæfing 2015
Málsnúmer 201412030
Flugslysaæfingin gekk ljómandi vel. Stjórnendur æfingarinnar hrósuðu starfsfólki heilbrigðisstofnunarinnar fyrir góða frammistöðu. Viðbragðsaðilar í sveitarfélaginu unnu sem vel samhæfður hópur og sjálfboðaliðar stóðu sig með prýði við erfiðar aðstæður og fá þeir þakkir fyrir.
4.
Sameining Heilbrigðisstofnana
Málsnúmer 201410056
Yfirstjórn HSU átti fund með stjórnendum, fulltrúum sveitarfélagsins og heilbrigðis- og öldrunarnefnd í dag. Fundurinn gekk vel, farið var yfir sameiginlega samstarfsfleti ásamt því að fjallað var um rekstrarstöðu stofnananna. Rætt um möguleika á nýjum þjónustusamningi um rekstur heilbrigðisþjónustunnar á Hornafirði þegar úttekt samningsins verður lokið.