Íbúaráð - Nes og Lón
11. fundur
9. febrúar 2026
kl.
13:00
-
14:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir
aðalmaður
Ásthildur Gísladóttir
aðalmaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Mótun og fyrirkomulag íbúaráða
Bæjarráð mætir á fund og ræðir fyrirkomulag íbúaráðanna og mótun þeirra til framtíðar.
Íbúaráð þakkar bæjarráði fyrir samtalið og lýsir yfir ánægju með starfið fram að þessu. Íbúaráð telur að starfið sé að skila árangri og telur mikilvægt að hlutverk íbúaráðanna verði rýnt og þróað áfram. Íbúaráð telur að val í íbúaráð ætti að eiga sér stað samhliða næstu sveitastjórnarkosningum og tekur undir með íbúaráði Suðursveitar- og Mýra um lýðræðislegt umboð ráðanna.
2.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Á síðasta fundi íbúaráðs var óskað eftir að ræða aftur við formann umhverfis- og skipulagsnefndar um sorpmál í dreifbýlinu, með sérstaka áherslu á flokkun og hrægáma.
Íbúaráð þakkar formanni umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir góðar umræður og óskar eftir upplýsingum um framvindu mála á næsta fundi. Íbúaráð óskar einnig eftir upplýsingum um hvaða forsendur liggja að baki gjaldtöku fyrir noktun hrægáma. Íbúaráð telur að leiðbeiningar um flokkun úrgangs þurfi reglulegri kynningu og telur að slíkar upplýsingar yrðu til bóta.
3.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Til stendur að fara í framkvæmdir á fundarhúsinu í Lóni í vor og sumar, það sem stendur til að gera er eftirfarandi: - Mála veggi innandyra og laga útihurðar- Mála allt að utandyra- Gera stíg upp að hurð inn í sal frá bílastæði farið sömu leið og stígur er í dag
Íbúaráð fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum við fundarhúsið í Lóni með von um meiri notkun á húsinu sem styður enn frekar við áframhaldandi viðhald. Íbúaráð ítrekar beiðni sína um að skoða útfærslu á umsjónarmanni fundarhússins.