Íbúaráð - Nes og Lón
12. fundur
24. júní 2026
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varamaður
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir
formaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Fyrir liggur hönnun að nýju leiksvæði við Mánagarð í Nesjum. Gert er ráð fyrir að svæðið verði byggt upp í áföngum með það að markmiði að efla aðstöðu til leikja og útivistar í hverfinu.
Íbúaráð telur mikilvægt að hafist verði handa sem fyrst, við áframhaldandi undirbúning og uppbyggingu leikvsvæðis við Mánagarð. Íbúaráð gerir ekki athugasemdir við hönnun vallarins en óskar eftir því að staðsetningin verði færð í samræmi við umræður á fundinum. Einnig bendir íbúaráð á að rafmagn í ærslabelg verði ekki aðgengilegt gestum og gangandi þar sem hver sem er getur tekið hann úr sambandi sem getur skapað slysahættu.
Íbúaráð óskar eftir því við bæjarráð að verkefninu verði gefinn forgangur og að leitað verði leiða til að hefja uppbyggingu þess eins fljótt og unnt er, með hliðsjón af bókun umhverfis- og skipulagsnefndar frá febrúar 2026.
Íbúaráð óskar eftir því við bæjarráð að verkefninu verði gefinn forgangur og að leitað verði leiða til að hefja uppbyggingu þess eins fljótt og unnt er, með hliðsjón af bókun umhverfis- og skipulagsnefndar frá febrúar 2026.
2.
Gjaldtaka á nýjum kafla hringvegar
Farið yfir fyrirkomulag gjaldtöku á nýjum kafla hringvegar. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum verður gjald innheimt fyrir notkun vegarins, þar sem gjald fyrir hverja ferð lækkar eftir fjölda ferða upp að tilteknu verðþaki. Innheimta gjalda verður mánaðarleg.
Íbúaráð lýsir áhyggjum af fyrirhugaðri gjaldtöku á nýjum kafla hringvegar og telur ósanngjarnt að íbúar á svæðinu beri beinan kostnað af samgöngumannvirki sem er hluti af þjóðveganeti landsins.
Íbúaráð leggur áherslu á að við ákvörðun um fyrirkomulag gjaldtöku verði sérstaklega horft til áhrifa hennar á íbúa sem þurfa að nýta veginn reglulega vegna atvinnu, skólasóknar, þjónustusóknar og annarra daglegra ferða.
Íbúaráð leggur áherslu á að við ákvörðun um fyrirkomulag gjaldtöku verði sérstaklega horft til áhrifa hennar á íbúa sem þurfa að nýta veginn reglulega vegna atvinnu, skólasóknar, þjónustusóknar og annarra daglegra ferða.
3.
Íbúaráð kjörtímabilið 2023-2026
Umræður um starf íbúaráðs Nesja og Lóns á kjörtímabilinu.
Íbúaráð telur starfið hafa gengið vel og hafi fært málefni íbúa í dreifbýlinu nær stjórnsýslunni og leggur áherslu á að haldið verði áfram að þróa og bæta stöðu og hlutverk íbúaráðanna. Íbúaráð hefur reynst góður vettvangur fyrir málefni sem einfalt er að leysa en hafa ekki fengið mikla áheyrn fram að þessu. Íbúaráð óskar eftir betri upplýsingagjöf um stöðu og framgang mála sem koma fyrir fundum íbúaráðanna.
4.
Netsamband í Lóni
Rætt um stöðu fjarskipta í Lóni í kjölfar breytinga sem gerðar voru á fjarskiptakerfum á síðasta ári. Fram hefur komið að netsamband á svæðinu hafi versnað eftir breytingarnar.
Íbúaráð lýsir áhyggjum af ábendingum um skert net- og símasamband í Lóni eftir breytingar á fjarskiptakerfum á svæðinu. Íbúaráð undirstrikar mikilvægi þess að fjarskiptaþjónusta verði tryggð fyrir öryggi og lífsgæði íbúa í dreifbýlinu öllu.