Fara í efni

Íbúaráð - Nes og Lón

13. fundur
29. september 2026 kl. 15:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir formaður
Ásthildur Gísladóttir aðalmaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Ósk um nýtingu á Fundarhúsi Lónmanna
Málsnúmer 202609038
Fyrir fundinum lá minnisblað um ósk Stephen Stephensen að fá Fundarhús Lónmanna til afnota fyrir listsköpun.
Íbúaráð er jákvætt fyrir að gerður verður skammtímasamningur til reynslu með skýru uppsagnarákvæði. Bent var á að yfirfara þurfi hurðir og glugga vegna leka. Einnig að skýrt væri að ef íbúar vilji setja upp viðburði eða fá húsið til afnota fyrir fundi og þess háttar að slíkt verði mögulegt á samningstímanum.
2.
Umgengni í Laxárdal í Nesjum
Málsnúmer 202609114
Umgengni í kringum lífrænan gám í Laxárdal hefur ekki verið til sóma undanfarið. Rusl, lífrænn úrgangur og garðaúrgangur er víða í kringum gáminn.
Íbúarráð áréttar að bæjarráð stuðli að ráðist verði í aðgerðir til að tryggja bætta umgengni, skora á íbúa að ganga vel um og upplýsa hvar megi losa viðkomandi úrgang.
3.
Snjómokstur og hálkuvarnir
Málsnúmer 202609113
Samkvæmt auglýsingu Vegagerðar má ráða að ekki verði ráðist í snjómokstur og hálkuvarnir á þriðjudögum og laugardögum.
Hjalti upplýsti að málið hafi verið til umræðu í bæjarráði og unnið sé að úrbótum á áætlun um snjómokstur. Íbúarráð telur mikilvægt að farið verði yfir ferla er varðar hreinsun og hálkuvarnir á heimreiðum í sveitarfélaginu.
4.
Dýralæknaþjónusta
Málsnúmer 201102070
Enginn dýralæknir hefur verið starfandi í sveitarfélaginu síðustu mánuði.
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við MAST og Bændasamtökin um lausnir í málinu. Íbúaráð lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðunni. Mikilvægt er að finna úrbætur á stöðunni sem fyrst.