Íbúaráð - Nes og Lón
8. fundur
16. júní 2025
kl.
14:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir
aðalmaður
Ásthildur Gísladóttir
aðalmaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Framtíðarsýn um málefni aldraðra 2026-2030
Í upphafi árs var ákveðið að hefja undirbúning við mótun framtíðarsýnar í málefnum aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2026-2034. Ákveðið var að stofna vinnuhóp vegna vinnslunnar og var hann skipaður fulltrúm bæjarstjórnar, velferðarnefndar, Félagi eldri Hornfirðinga og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Hópurinn hóf undirbúning við tvær vinnustofur sem haldnar voru í apríl og maí og voru vel sóttar og þóttu heppnast vel. Hópurinn hefur nú fundað sex sinnum og unnið úr niðurstöðum vinnustofanna.Sviðsstjóri velferðarsviðs mætir á fund og fer kynnir vinnuna sem hefur átt sér stað.
Íbúaráð þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir góða kynningu og leggur áherslu á að kynningin nái til sem flestra og hvetur íbúa til þess að fjölmenna á kynningarfundina sem haldnir verða í haust.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sviðsstjóri umhverfis - og skipulagssviðs mætir á fund og fer yfir endurskoðun aðalaskipulags.Öll gögn sem málið varðar eru undir þessum hlekk https://skipulagsgatt.is/issues/2023/11
Íbúaráð þakkar umhverfis- og skipulagsstjóra fyrir kynninguna. Íbúaráð hvetur alla til þess að kynna sér gögnin á skipulagsgáttinni, að sækja fundina sem auglýstir eru og senda inn ábendingar og athugasemdir ef þörf krefur. Þetta er hagsmunamál fyrir alla og brýnt að íbúar gefi sér tíma til þess að gefa umsögn.
3.
Búfjársamþykkt Fjallskilasamþykkt
Drög að nýrri búfjársamþykkt lögð fram til upplýsinga og umræðu. Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála mætir á fund.
Íbúaráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að búfjársamþykkt en leggja áherslu á að áður en hún verður samþykkt verði hún kynnt vandlega fyrir landeigendum og bændum og þeim gefinn kostur á að koma með athugasemdir.
4.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Eitt og annað er farið að sjá á í fundarhúsinu í Lóni. Umræður um framtíð hússins.
Íbúaráð óskar eftir upplýsingum um viðhaldsáætlun hússins og að farið verði í almennt viðhald á húsinu. Íbúaráð telur að húsið gæti nýst betur ef það fær upplyftingu og athygli.