Fara í efni

Íbúaráð - Nes og Lón

9. fundur
24. september 2025 kl. 13:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir aðalmaður
Ásthildur Gísladóttir aðalmaður
Ásta Steinunn Eiríksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Málsnúmer 202506071
Minnisblað með tillögu um breytingar á leikvelli við Mánagarð lagt fram til umræðu.
Íbúaráð fagnar tillögunni og bendir áhugasömum á að hafa samband við íbúaráð ef þau hafa hugmyndir eða ábendingar varðandi leikvöllinn.
2.
3ja fasa rafmagn í Lóni
Málsnúmer 202411051
Bæjarstjóri kemur á fund og fer yfir stöðuna á 3ja fasa rafmagni í Lóni.
Búið er að leggja 3ja fasa rafmagn að Jökulsá í Lóni og hafði Rarik tilkynnt sveitarfélaginu að strengur yrði lagður austur fyrir Jökulsá að Stafafelli í haust. Það barst póstur frá Rarik í dag þar sem fram kemur að ekki sé víst að það náist að klára að leggja strenginn austur fyrir Jökulsá á þessu ári vegna ýmissa atriða sem ekki voru útskýrð frekar. Sveitarfélagið mun spyrjast nánar fyrir hvað veldur.

Á næsta ári er stefnt að því að bjóða út lagningu á 3ja fasa rafmagni fyrir það sem eftir stendur innan sveitarfélagamarka austan megin.
3.
Félagsheimili sveitarfélagsins
Málsnúmer 202310043
Umsjónarmaður fasteigna fer yfir viðhaldsáætlun fyrir fundarhúsið í Lóni.
Íbúaráð óskar eftir því við bæjarráð að fyrirkomulag á fundarhúsinu í Lóni verði sambærilegt annara félagsheimila sveitarfélagsins, að fundinn verði húsvörður á svæðinu sem getur haft umsjón með húsinu, tekið við bókunum og fylgst með notkun þess. Eins óskar íbúaráð eftir því að aðgengi á efri hæð hússins verði bætt með útistíg eða tröppum.