Fara í efni

Íbúaráð Öræfum

1. fundur
5. október 2023 kl. 15:30 - 18:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Sunneva Björk Helgadótir formaður
Matthildur U Þorsteinsdóttir aðalmaður
Madalin-lonut Huminiuc aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Frístundamöguleikar grunnskólabarna í dreifbýli
Málsnúmer 202309103
Minnisblað æskulýðs og tómstundafulltrúa vegna fyrirspurnar íbúaráðs um frístundamöguleika fyrir börn í Öræfum.
Frístundarstarf hangir alltaf á því fólki sem við höfum hverju sinni, vilja þeirra til að halda uppi starfi og áhuga iðkenda.
Sveitarfélagið Hornafjörður veitir foreldrum barna á aldrinum 5 - 18 ára frístundastyrki vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi. Frístundastyrknum er þannig ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu en einnig að stuðla að fjölbreytileika í íþrótta-, lista og frístundastarfi. Meginskilyrði styrksins er að starfsemin sé á forsendum uppeldislegra, gilda og forvarna.
Til að hægt sé að nýta frístundarstyrkinn þarf þjónustan að vera í boði í gegnum Sportabler.
Æskulýðs og tómstundafulltrúi sveitarfélagsins hefur boðið þeim sem bjóða upp á frístundastarf að skrá þeirra þjónustu í Sportabler aðgang sveitarfélagsins til þess að foreldrar og aðrir geti nýtt frístundarstyrkinn.

2.
Fræðsla til ferðamanna
Málsnúmer 202310011
Umræður um fræðslu til ferðamanna um umhverfisvernd, sorpmál og almenningssalerni.
Íbúaráð hefur áhyggjur af sorpmálum og telur að það vanti ruslagáma á mörgum stöðum þar sem ferðamenn sækja.
Íbúarráð hvetur sveitarfélagið og ferðaþjónustufyrirtæki í sveitarfélaginu að gera ráðstafanir svo ferðamenn geti losað sig við sorp. Einnig hvetur ráðið til þess að fræðsluefni um umhverfismál verði aðgengileg fyrir ferðamenn.
Borið hefur á að göngufólk geri þarfir sínar í Múlagljúfri, Sandfelli og á gönguleiðinni við Svínafellsjökul. Íbúaráð hvetur sveitarfélagið til að setja skilti þar sem fólki er bent á að taka með sér allan úrgang frá þeim svæðum sem þeir heimsóttu. Hvatt er til að fyrirtæki merki betur almenningssalerni sem eru í boði fyrir ferðamenn. Einnig hvetur íbúaráð ferðaþjónustufyrirtæki sem fara með ferðamenn á afskekkt svæði um að vara ferðamenn við því að ekki séu salerni á þeim svæðum sem farið verður til.
3.
Aðstaða fyrir Björgunarsveitina Kára
Málsnúmer 202309105
Íbúaráð hefur áhyggjur af þröngri aðstöðu Björgunarsveitarinnar Kára, Klifurfélagsins og slökkviliðsins í Öræfum.
Umræður um húsnæðismál og hvernig nýir félagar geti tekið þátt í starfi Björgunarsveitarinnar Kára.
Húsnæðið ber ekki alla þessa starfsemi.
Íbúaráð hvetur bæjarráð til þess að skoða hvort það sé möguleiki á stækka aðstöðuna svo hægt sé að nýta hana betur fyrir almenning þar sem hægt er að stunda margskonar almenningsíþróttir.
4.
Ábending um netöryggi í Öræfum
Málsnúmer 202306023
Um tíma datt netsamband út þegar rafmagnslaust var í Öræfum það kom í ljós að rafhlöður í búnaði voru orðnar lélegar. Rafhorn uppfærði/skiptu um rafhlöður á búnaði og segja þeir að þetta vandamál sé úr sögunni.
Umræður um nethraði og framtíðarplön internets í Öræfum.
Unnið er að greiningu og mati á ljósleiðarkerfi sveitarfélagsins. Veikleikar eru á Öræfanetinu og er endurnýjun á ljósleiðara í Öræfum er forgangsmál í þeirri vinnu sem framundan er.
5.
Húsnæðismál í dreifbýli
Málsnúmer 202310012
Umræður um húsnæðismál í Öræfum.
Skortur er á húsnæði fyrir fjölskyldufólk og hefur íbúaráð áhyggjur af því að fjölskyldur ná ekki að setjast að og þróunin valdi því að farandverkafólk verði eini kosturinn fyrir fyrirtæki á svæðinu.
6.
Eldri borgarar í dreifbýli
Málsnúmer 202310009
íbúaráð óskar eftir upplýsingum um áætlun fyrir eldriborgara og hvaða þjónusta býðst eldri borgurum í Öræfum.
Vísað til vinnu starfsmanna.
7.
Veglokanir og aðgerðir í stormviðri
Málsnúmer 202310010
Umræður um aðstæður í stormi og veglokanir, íbúaráð óskar eftir upplýsingum um hvert ferðamenn eigi að leita þegar þeir eru fastir í óveðri og hver ber ábyrgðina á lokunum.
Íbúaráð óskar eftir áætlun Vegagerðarinnar um vegalokanir og aðstæður sem verða til í stormviðri.
8.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Málsnúmer 201807008
Óskað var eftir að veðurstofan gefi út skilgreiningu á hættusvæðum vegna berghlaups í Svínafellsheiði bæði á byggðu og óbyggðu svæði.Veðurstofan vann áhættumat skýrsla um það var lokið árið 2021 en ekki gefin út, samkvæmt upplýsingum frá er hún í endurskoðun og verður gefin út í lok árs.
9.
Áhyggjur af fjölgun ferðamanna - Álag á innviðum
Málsnúmer 202305098
Bæjarstjórn sendi í byrjun sumars ákall til ráðherra innviða, heilbrigðis og dómsmála vegna veikra öryggisinnviða í Öræfa- og Suðursveit. Brugðist var við beiðni bæjarstjórnar og samþykkt að auka við löggæslu í sumar ásamt því að sjúkrabílavakt var í Öræfum í ágúst. Einnig var láglendisvakt Landsbjargar starfrækt í Öræfa- og Suðursveit eftir beiðni sveitarfélagsins þar um. Reynsla sumarsins sýnir svo ekki verður um villst mikilvægi þess að styrkja til muna öryggis innviði á svæðinu, ekki síst yfir háanna tíma í ferðaþjónustu.
Lagt fram til upplýsinga.
10.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Tillaga að skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi við Hvalvörðugilslæk í Öræfum.
Brynja greindi frá skipulagslýsingu sem er í kynningu.