Fara í efni

Íbúaráð Öræfum

10. fundur
19. febrúar 2026 kl. 10:00 - 12:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Matthildur U Þorsteinsdóttir aðalmaður
Jolanta Maria Biel
Jón Ágúst Guðmundsson formaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hofgarður Endurbætur
Málsnúmer 202506011
Tillögur að endurbótum á eldhúsi í Hofgarði lagðar fram.
Íbúaráð hefur ekki athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir en lýsir yfir ánægju með þær og telur þær verða til bóta.
2.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Málsnúmer 202510014
Á síðasta fundi íbúaráðs var óskað eftir að ræða aftur við formann umhverfis- og skipulagsnefndar um sorpmál í dreifbýlinu, með sérstaka áherslu á flokkun og hrægáma.
Íbúaráð þakkar formanni umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir góðar umræður. Íbúaráð telur að grenndarstöð og aðgangsstýring að hrægámum geti orðið til bóta, að auka þurfi upplýsingaefni um flokkun og að það verði kynnt vel fyrir íbúum. Óskað er eftir upplýsingum um framvindu mála á næsta fundi.
3.
Mótun og fyrirkomulag íbúaráða
Málsnúmer 202601142
Bæjarráð mætir á fund og ræðir fyrirkomulag íbúaráðanna og mótun þeirra til framtíðar.
Íbúaráð telur samskiptin við stjórnsýslu bæjarins um ráðin hef verið töluverð framför til bóta og almennt gott samstarf, en telur mikilvægt að ráðin fái meiri vægi. Íbúaráð telur mikilvægt að allar skipulagsbreytingar og fyrirhugaðar framkvæmdir eða önnur áform er varða Öræfi verði kynnt íbúaráði, að hægt sé að halda auka fundi þegar þess er þörf og að fulltrúi úr bæjarstjórn sitji fundi íbúaráðanna.
4.
Fundur með íbúaráði Öræfa vegna Skaftafells II og IV
Málsnúmer 202602093
Skipulagsfulltrúi, bæjarstjóri og bæjarráð mæta á fund og ræða málefni Skaftafells II Og IV.Á íbúafundi í Hofgarði 18.febrúar 2026, þar sem mættir voru 22 íbúar Öræfum, var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða: Byggðin á nærsvæði þjóðgarðsins í Skaftafelli er óásættanleg, fundurinn fordæmir vinnubrögð sveitarfélagsins hvað varðar skipulagsferlið frá upphafi til enda. Fundurinn skorar á Sveitarfélagið Hornafjörð að afturkalla skipulagsheimildirnar og láta fjarlægja húsin, það gæti verið fyrsta skref í að endurreisa traust íbúa í Öræfum til stjórnsýslu sveitarfélagsins. Jafnframt krefst fundurinn þess að bæjarstjórn komi á fund íbúafund í Öræfum innan fjögurra vikna, til að ræða þetta málefni.
Íbúaráð tekur samhljóða undir framlagða bókun og gerir eftirfarandi athugasemdir við fyrirliggjandi áform og málsmeðferð:

Um málsmeðferð
Íbúaráð telur að annmarkar hafi verið á ferli málsins og að ástæða sé til að fara yfir framkvæmd þess með gagnrýnum hætti. Ráðið leggur áherslu á að stjórnsýslan sé vönduð og gagnsæ og að lærdómur verði dreginn af málinu eftir því sem við á.

Um hækkun lands og ásýnd mannvirkja
Íbúaráð lýsir áhyggjum af verulegri hækkun lands undir fyrirhuguðum byggingum og telur að sú framkvæmd hafi áhrif á ásýnd svæðisins. Sérstaklega er bent á að breytingar á landmótun geti haft áhrif á sýnileika mannvirkja frá innkeyrslu í þjóðgarðinn og þar með á upplifun gesta og íbúa af svæðinu.

Um áhrif á atvinnustarfsemi íbúa
Íbúaráð bendir á að fyrirhugað aukið gistirými geti haft áhrif á rekstrarumhverfi núverandi aðila á svæðinu. Áhyggjur hafa verið reifaðar um að allt að 12-15 fjölskyldur sem stunda starfsemi tengda ferðaþjónustu kunni að verða fyrir tekjutapi eða skertri möguleika til uppbyggingar og þróunar starfsemi sinnar.

Um aðlögun að landslagi og staðaranda
Íbúaráð hefur tekið við ábendingum frá íbúum sem telja að fyrirhugaðar byggingar falli ekki nægjanlega vel að landslagi og sérstöðu staðarins. Ráðið leggur áherslu á að við frekari útfærslu verði tekið fullt tillit til umhverfis, staðaranda og heildaryfirbragðs svæðisins.

Um stöðu á heimsminjaskrá
Í umræðum kom fram áhyggja um hvort framkvæmdirnar kynnu að hafa áhrif á stöðu svæðisins á heimsminjaskrá. Íbúaráð telur mikilvægt að fyrir liggi skýr og fagleg niðurstaða um þau áhrif og að hún verði kynnt opinberlega.

Um stjórnsýslu og setu í stjórnum
Einnig var rætt um mögulegt vanhæfi vegna setu fulltrúa bæjarstjórnar í stjórn þjóðgarðsins. Íbúaráð telur mikilvægt að öllum slíkum álitaefnum sé mætt með skýrum rökstuðningi og gagnsæi, þannig að traust til ákvarðanatöku og stjórnsýslu sé tryggt.

Af hálfu bæjarfulltrúa og bæjarstjóra kom fram að ekki væri fallist á að mistök hefðu átt sér stað í ferlinu. Þá kom fram að þörf væri á auknu gistirými á svæðinu, meðal annars til að mæta umfram eftirspurn á háannatíma. Einnig var því lýst yfir að framkvæmdirnar væru ekki taldar ógna stöðu svæðisins á heimsminjaskrá og að rökstuðningur lægi fyrir varðandi setu fulltrúa í stjórnkerfi þjóðgarðsins.
Íbúaráð leggur áherslu á áframhaldandi málefnalega umræðu, vandaða upplýsingagjöf og að tekið verði tillit til sjónarmiða íbúa við frekari ákvarðanatöku.