Fara í efni

Íbúaráð Öræfum

11. fundur
22. júní 2026 kl. 16:00 - 18:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Madalin-lonut Huminiuc aðalmaður
Jón Ágúst Guðmundsson formaður
Starfsmenn
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúaráð kjörtímabilið 2023-2026
Málsnúmer 202606037
Íbúaráð fer yfir helstu verkefni og málefni sem verið hafa til umfjöllunar á kjörtímabilinu. Jafnframt farið yfir þau áherslumál sem ráðið telur mikilvægt að áfram verði unnið að og fylgt eftir á komandi árum, verkefna sem hafa verið í forgrunni hjá ráðinu, stöðu þeirra og þeirra áskorana sem enn standa eftir. Markmið yfirferðarinnar er að draga saman helstu áherslur íbúaráðs, undirstrika mikilvægi áframhaldandi framvindu þeirra mála sem snerta hagsmuni íbúa og samfélagsins í heild og leggja grunn að áframhaldandi samtali við sveitarfélagið um forgangsröðun og framkvæmd verkefna.
Íbúaráð leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu og eflingu samfélagsins í Öræfum og telur mikilvægt að horfa heildstætt á framtíðarþróun svæðisins og telja mikilvægt að styrkja innviði og þjónustu samhliða þeirri atvinnu- og ferðaþjónustustarfsemi sem byggist upp á svæðinu.
Áfram þarf að vinna að úrbótum í Hofgarði, meðal annars með bættri hljóðvist, uppfærslu á búnaði og endurskoðun á öryggis- og flóttaáætlunum. Jafnframt er mikilvægt að skýra framtíðarhlutverk Hofgarðs og aðstöðu fyrir skólastarf, félagsstarf, skólaheimsóknir, Fjallaskólann og mögulega heilsugæsluþjónustu. Einnig telur íbúaráð mikilvægt að skapa börnum og ungmennum á svæðinu vettvang til að koma hugmyndum sínum og sjónarmiðum á framfæri við íbúaráð.
Mikilvægt er að samtal við íbúa verði haft að leiðarljósi við ákvarðanir um uppbyggingu björgunarmiðstöðvar, íþróttaaðstöðu og annarra stærri samfélagsverkefna. Slík verkefni þarf að skoða í samhengi við heildarþarfir samfélagsins og þá framtíðarsýn sem íbúar hafa fyrir svæðið.
Nauðsynlegt er að sveitarfélagið vinni áfram að því að skapa forsendur fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Öræfum. Ljóst er að áhugi er fyrir búsetu á svæðinu en skortur á húsnæði og lóðum hamlar frekari uppbyggingu. Jafnframt þarf að halda áfram samtali við landeigendur og öðrum undirbúningi sem getur stutt við fjölgun íbúa og styrkingu byggðarinnar.
Kallað er eftir varanlegri og vel útfærðri lausn í sorphirðumálum, meðal annars með uppbyggingu grenndarstöðvar og bættri þjónustu við íbúa og ferðamenn. Einnig þarf að skoða aukna söfnun ákveðinna úrgangsflokka og bæta upplýsingagjöf um flokkun og meðhöndlun úrgangs.
Jákvætt er að framfarir hafi orðið í öryggis- og heilbrigðismálum, meðal annars varðandi bráðaviðbragðsþjónustu á svæðinu. Áfram þarf þó að vinna að uppbyggingu björgunarmiðstöðvar og efla heilsugæsluþjónustu, meðal annars með reglulegri læknaþjónustu og viðeigandi aðstöðu fyrir starfsemi heilsugæslusels.
Brýnt er að bætt verði úr net- og fjarskiptamálum í Öræfum. Óstöðugt netsamband hefur áhrif á daglegt líf íbúa, atvinnustarfsemi og öryggi og því mikilvægt að skýr og tímasett áætlun liggi fyrir um frekari uppbyggingu og viðhald fjarskiptainnviða.
Mikilvægt er að atvinnu- og fræðslustefna Vatnajökulsþjóðgarðs verði þróuð í nánu samstarfi við heimamenn og taki mið af hagsmunum samfélagsins, byggðaþróun og þörf fyrir innviðauppbyggingu. Jafnframt þarf að tryggja að tekjur og umsvif sem verða til á svæðinu endurspeglist í nauðsynlegri uppbyggingu innviða.
Óásættanlegt er að uppfært áhættumat vegna skriðuhættu liggi ekki fyrir. Mikilvægt er að þeirri vinnu verði lokið sem fyrst og að skýrar upplýsingar liggi fyrir um viðbrögð og upplýsingaflæði vegna mögulegrar náttúruvár.
Að lokum er lögð áhersla á að hafin verði markviss vinna með íbúum að sameiginlegri framtíðarsýn fyrir Öræfi. Sú vinna þarf að taka til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, samfélagsinnviða, þjónustu, þjóðgarðsmála og annarra lykilverkefna sem snerta framtíð byggðarinnar. Um leið þarf að styrkja hlutverk íbúaráðs og bæta tengsl þess við stjórnsýslu sveitarfélagsins þannig að sjónarmið íbúa fái skýrari farveg og framgang.

2.
Gjaldtaka á nýjum kafla hringvegar
Málsnúmer 202606049
Farið yfir fyrirkomulag gjaldtöku á nýjum kafla hringvegar. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum verður gjald innheimt fyrir notkun vegarins, þar sem gjald fyrir hverja ferð lækkar eftir fjölda ferða upp að tilteknu verðþaki. Innheimta gjalda verður mánaðarleg.
Íbúaráð lýsir yfir áhyggjum á fyrirhugaðari gjaldtöku og bendir á ósanngirni þess að íbúar á svæðinu borga fyrir framkvæmd sem þessa. Íbúaráð bendir enn fremur á þær miklu tekjur sem ferðaþjónusta á svæðinu skapar fyrir ríkissjóð án þess að innviða uppbygging fylgi.